Ægir - 01.08.1917, Blaðsíða 15
ÆGIR
119
Gerum ráð fyrir að meðalverð báts
með öllu tilheyrandi sé nú um 15000 kr.
Þá er bátaeign þessi 9.915.000 kr. virði.
10 millionir króna er mikið fé, og væri
álitlegt stofnfé til myndarlegs eimskipa-
félags. Þeir, sem einkum og sérílagi eiga
að gæta þessara fjármuna eru formenn
bátanna. Þeim 660 mönnum er trúað
fyrir þessari miklu eign og rekstri. Abyrgð
sú er þeir takast á hendur, er mikil, og
það ætti að sýna formönnum, að á öllu
er þörf, er þeir geta lagt fram, dugnaði,
þrifnaði, aðgæslu í hvivetna og hlýðni
við öll siglingalög.
Mótorbátaformenn ættu að mynda fé-
lag með sér i hverri veiðistöð, halda
fundi til skrafs og ráðagerða, leita sér
þeirra upplýsinga um atvinnuna, sem
kostur er á, og þeir, sem reyndir eru,
ættu að leiðbeina hinum yngri, og berj-
ast fyrir þvi, að ýmsar athuganir, hvað
mið og annað snertir, ekki gleymist, þvi
áreiðanlega er það víst, að margt það
er aihugavert þótti og nauðsynlegt fyrir
formenn að vita árið 1895, er nú, 1917,
gleymt og týnt, og er það illa farið, en
þá afturför má rekja til fækkunar róðra-
báta. Slikar samkomur formanna mundu
leiða margt gott af sér og auka virðingu
þeirra. Það er gott að kunna hið nauð-
synlega í siglingafræði, en formenn eru
jafnmiklir og jafngildir menn, þótt þeir
ekki kunni að reikna staðarlínur; reynsla
þeirra og þrautir þær er þeir verða að
yfirvinna, gerir þá að þeim mönnum,
sem eiga að halda hóp, sem stétt sú, er
kenna á þeim eftirkomendum, sem við
atvinnurekstrinum taka, þegar núlifandi
formenn verða að hætta, en til þess að
geta það verða þeir að auka þekkingu
sína á öllu er að atvinnunni lýtur og
engu gleyma, og afhenda eftirmönnum
sínum ýmsar góðar leiðbeiningar. Það
verður stéttinni til vegs og virðingar.
Skoðunarmenn siysatryggingar sjó-
manna — hverjir sem þeir verða — ættu
að skoða útbúnað á hástokkum á
»Svan II.« frá Akranesi, eign hr. Lofts
Loftssonar, og gera þann útbúnað að
skyldu, ef slysatryggingin setur reglur á
annað borð. Sá útbúnaður gæti orðið
einhverjum til lífs, væri hann ekki van-
ræktur af formönnum sjálfum.
Frumvarp lil laga om vitabyggingar
frá sjávarútvegsnefnd alþingis.
1. gr. Landsstjórninni er heimilt að lála
framkvæma, eítir því sem vinnukraftur
sá, sem vitastjórnin hefir á að skipa, og
önnur atvik og ástæður leyfa, byggingu
vita þeirra og þokulúðrastöðva, sem 2.
gr. ákveður.
Þá er og landsstjórninni heimilt að
setja upp sjómerki á landi og sjó þar
sem þörf gerist og hentugt þykir.
Bygging vitanna framkvæmist eftir röð,
er landsstjórninni með ráðum vitamála-
stjóra þykir rétt, og að fengnum tillögum
Fiskifélags íslands og Eimskipafélags ís-
lands.
Einnig er landsstjórninni heimilt að
framkvæma þær breytingar og endur-
bælur á vitum þeim, er þegar eru bygðir,
sem reynsla sýnir að nauðsynlegar séu.
2. gr. Vitar þeir, er landssljórninni
heimilast að byggja, eru þeir er hér
greinir:
A. Stœrri vitar.
1. Hafnareyjarviti við Flatey á Breiða-
firði.
2. Svalvogaviti á nesinu milli Arnar-
fjarðar og Dýrafjarðar.