Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1917, Page 13

Ægir - 01.08.1917, Page 13
ÆGIR 117 í Ægi hefir verið ritað um björgunar- skip. Nú fer að verða tími til að ræða það mál frekar, þegar Marconislöðin tekur til starfa. Hvað eru bjargráðí 1. Vátryggingarfélög með sínum reglum. 2. HK'ðni formanna við seltar reglur lil öryggis. 3. Að formenn hagnýti sér alt, er eykur þekkingu þeirra á starfi sinu. 4. Góð meðferð á seglum og reiða. 5. Járnslár til að festa með lúkum yfir lestarop. 6. Olíupokar og olia eða lýsi. 7. Rekakkeri. 8. Öryggislínur. 9. Að akkeriskeðju-lásarsnúirétt(bugðan að akkerinu — boltinn að spilinu). 10. Skilningur á verkun stýris á hreyfing- ar skips. 11. Að koma mannlausum bát til skips, sem í nauðum er statt. 12. Að geyma ekki það, sem á að fylgja bát í hverjum róðri, inni í skemmu, þegar farið er á sjó. 13. Að reyna að halda mótormönnum við sömu tegund véla. 14. Að hafa siglingareglur ávalt á skipi. 15. Að kveikja hin lögboðnu ljósker á fyrirskipuðum tíma. lJetta látum við nú nægja fyrst i stað. Tillagan um hjargráð var í alla staði réttmæt og sjálfsagt að samþykkja hana, því þessu verður að halda vakandi; en að bíða 2 ár enn þá, og leggja þá það fram, sem til er nú og til var fyrir mörg- um árum, það styrkir ekki framkvæmdir. Og tillagan kemur frá þeim veiðistöðum, sem senda máske 1000 manns út á sjó- inn á einum degi i tvísýnu veðri, frá þeim stöðum þar sem slys hafa verið tíð. Bátar þar taldir um 150. Einmitt frá þeim stöð- um mátti búast við svohljóðandi tillögu: »Fiskiþingið skorar á stjórn Fiskifélags- ins, að hún þegar á þessu sumri, sendi mann á sem flestar veiðistöðvar lands- ins, til þess að brýna fyrir mönnum notkun björgunaráhalda, og leiðbeina í þvi efni eins og frekast verður«. í þrjú ár hefir Ægir flutt fiskimönnum áskoranir og hvatningar til að nota björg- unartæki. — Stjórn félagsins og ritstjóri blaðsins geta ekki aðrar framkvæmdir sýnt en þær, sem komnar eru fram, þar eð þeir menn allir eru bundnir við hinn sama stað, og þeirra meðal verður því að eins að halda þessu vakandi með pennanum, en ósk þeirra allra er, að bæði þetta og annað, er stéttinni yrði til þrifa, fengi áheyrn og skjótar fram- kvæmdir. Að síðustu læt eg hér fylgja fregnina um endalok gamals kunningja okkar allra, »Vestu« gömlu. Hún kveður okkur með þvi, að láta skipstjóra sinn gefa vottorð um, að rekakkeri það, sem Ægir hefir reynt að koma mönnum til að nota, er ekki hégóminn einber. Að hans sögn væru nú fleiri munaðarleysingjar, hefði hann geymt rekakkeri bátanna niðri í seglklefa skipsins eða ekki viljað né kunnað að nota það. Þegar „Vestu“ var sökt. Færeyska blaðið »I)immalætting« flytur fregnir af því, þegar »Vestu« var sökt, og hefir þær eftir Frandsen skipstjóra. Þar segir svo: Á Seyðisfirði tók »Vesta« 719 tunnur af sild, 359 tunnur af lýsi og 5 tunnur af görnum. Átti hún síðan að fara til Eskifjarðar og taka þar 155 poka af ull. En vegna þoku komst skipið aldrei þangað og hélt því af stað til Englands. Samkvæmt ráðleggingu brezka konsúls- ins i Reykjavík ætlaði skipið að sigla fyrst til Stornoway, en annars var förinni L

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.