Ægir - 01.08.1917, Blaðsíða 14
118
ÆGIR
heitið til Fleetwood. Að kvöldi hins 15.
júlí fór skipið fram hjá Sumbo-vita og
stefndi á norðanverðar Suðureyjar. Var
þeirri stefnu haldið þangað til kl. 2,i0
um nóttina. Þá kom tundurskeytið á
skipið. Österlund stýrimaður var þá á
verði. Tundurskeytið hæfði sennilega hið
vatnsþétta hólf milli vélarrúms og aftur-
lestar. Var sprengingin svo öflug að stór-
sigla, afturvinda og alt þakið aí reykinga-
salnum ílaug í loft upp.
Bátarnir héngu utanborðs í svifvindum
og var þeim þegar rent í sjóinn. Skipið
sökk óðum. í bakborðsbát fóru 9 menn,
þar á meðal skipstjóri. En er báturinn
ætlaði að láta frá borði, kemur Larsen
yfirvélstjóri og biður að taka sig i bátinn.
Einn af skipverjum náði í hann, en Lar-
sen þorði eigi að sleppa handriði skips-
ins, þvi að hann var maður gamall og
hjartveikur. 1 sama bili brotnaði skil-
rúmið milli vélarúms og stórlestar. Sökk
»Vesta« þá beint niður á endann, en
svifvinda kræktist í bátinn og hvolfdi
honum. Flestir komust á kjöl, en þriggja
var saknað, Larsens vélstjóra, kyndara
og háseta.
Stjórnborðsbátur komst slysalaust l'rá
borði. Hann bjargaði skipsstúlkunni, sem
hann fann fljótandi á rekaldi nokkru.
Hún hafði sofið á legubekk hjá fyrsta
farrými og hefir sennilega slöngvast upp
úr rej'kingasalnum og út á sjó um leið
og sprengingin varð. Hún var nokkuð
sködduð. Síðan bjargaði báturinn hinum
öðrum og kom þá i Ijós að fimm menn
af skipshöfninni vantaði, og er ætlað að
tveir þeirra hafi beðið bana við spreng-
inguna, en hinir druknað. — Skipstjóri
segir að »Vesta« muni hafa sokkið á svo
sem einni minútu.
Þegar skipið var sokkið kom kafbátur-
inn i ljós og beimtaði skipsskjölin. En
þau voru sögð týnd. Þá spurði hann um
ílutning skipsins, hver hann hefði verið
og hve mikill. Var þvi svarað. Segir skip-
stjóri að meðan þessu fór fram, hafi
skipshöfnin á kafbátnum staðið á þiljum
og brosað að skipshöfn »Vestu«, og altaf
hefði fallbyssu kafbátsins verið beint að
bátnum. En svo voru kafbátsmenn kall-
aðir undir þiljur og síðan stakk kafbát-
urinn sér.
í bát »Vestu« voru 20 menn og var
Iiann því fullhlaðinn. En 60 sjómílurvoru
til lands. Voru þeir 29 klukkustundir að
ná landi og hreptu kalt veður og hvast.
Hefði líklega enginn bjargast, ef báturinn
hefði eigi baft drijakkeri og olíu. Voru
allir aðframkomnir af kulda og þreytu,
er þeir náðu landi í Sumbobygð. [Mbl.].
Reykjavik 14. Ágúst 1917.
Sveinbjörn Egilson.
jlíótorbátar á 3slanði
1. Júlí 1917.
Ein- Tala Hesta-
kenni. báta. öíl.
R. E. Reykjavík................ 38 1025
Guílbr. og Kjósars. og |
G-k' Hafnarfjörður.........f 5a 9/2
M. B. Mýra- og Borgarfj.s. . 15 325
S. H. Snæf. og Hnappad.s. . 23 254
B.A. Barðastrandarsýsla . . 18 184
I.S. Isafj.s. og kaupstaður 149 1996
S.T. Strandasýsla.............. 5 60
H.U. Húnavatnssýsla .... 6 52
S.K. Skagafjarðarsýsla ... 6 33
E.A. Eyjafj.s. og Akureyri . 128 1746
Th. Þingeyjarsýsla...... 34 336
N. S. N.-Múlas. og Seyðisfj. 25 358
S.U. Suður-Múlasýsla. ... 71 785
V.E. Vestmannaeyjar .... 66 819
JA.R. Árnessýsla............... 22 245
Bátar alls 661 9190