Ægir - 01.07.1918, Side 7
Æ GI R
107
kostnað, hlutfallslega fyrir þann tíma, sem fram yfir 30 daga frá því kaupin gerð-
ust, og skal það reiknað eftir þvi sem venja er tii, eða eftir samkomulagi. Kröfur
um endurgreiðslu á slíkum gjöldum skulu sendar últlutningsnefndinni tafarlaust,
þegar varan er komin um borð.
10. gr.
Fulltrúi Bandamanna hefir fallist á fyrst um sinn að sinna öllum fram-
hoðum, sem kunna að koma á þorskhrognum, samkvæmt þessum reglum.
En komi það fyrir seinna meir, að fulltrúi Bandamanna afsali forkaupsrélti
sinum, má útflutningsnefndin flytja vöruna út til viðtakanda i löndum Bandamanna,
Bandarikjanna í Norður-Ameríku, eða til viðurkendra viðtakenda í viðurkendum
hlutlausum löndum að áliti Bandamanna. Um þessa vöru gilda þó sömu reglur og
ákvæði, sem þegar eru tekin fram.
Keykjavík, 24. jiiní 191§.
Thor Jenssen, Pe'tur Jónsson.
Jonnaður.
Ó. Benjamínsson.
Mótorskip - segiskip.
Fyrir 3 árum eða í júli 1915 var verð
á steinolia í þann veg að komast upp í
40 kr. fyrir hverja tunnu, nú er það í
Reykjavik 95 kr. og á Akureyri 106 kr.
Þrátt fvrir þessa verðhækkun, fjölgar
liér þeim skipum, sem sagt er um, að
ekki komist yfir sjóinn, sé ekki þessari
dýru vörutegund evtt til flestra hreifinga
þeirra. Sjálf eru skipin það dýr, að fyrir
andvirði 60 tonna mótorbáts nú á tímum,
niátti fyrir nokkrum árum fá 3 nýjar
danskar skonnortur með seglum og reiða
af sömu stærð og stærri. í haust lá hér
á höfn dönsk skonnorta um 110 tonn
að stærð. Eg var málkunnugur skip-
stjóranum og spurði eg hann eitt sinn,
hvers virði skip hans væri. Sagði hann
mér þá, að í raun réttri væri virði þess
31.000 kr., en ætti að selja það nú, væri
verðið 130.000. Þegar smáskip eins og
mótorbátarnir eru, kosta með öilu því,
sem með þarf, til þess að þeir geti stund-
að veiðar, upphæðir, sem nálgast 100.000
kr., og auk þess eru álitnir að vera það
ómögulegir sem skip, að þeir komist
ekki ferða sinna, nema með því eina
móti, að nota steinolíu sem kostar um
100 kr. hver tunna, þá verða menn sannar-
lega að athuga hvað hér er að gerast.
Stríðið hefir seinasl í þessum mánuði
staðið yfir í 4 ár og vonandi fer að liða
að endalokum og má telja það víst, eftir