Ægir - 01.07.1918, Blaðsíða 23
ÆGIR
123
Mál til meðferðar alls í þinginu:
Frumvörp ........................... 49
Þingsályktunartillögur ............. 50
Fyrirspurnir ........................ 8
Alls 107
Rökstuddar dagskrár
hafa verið bornar fram 13.
Þar af 5 samþvktar, en 8 feldar.
Saiubandsmálið.
Að lokum mælti forseti á þessa leið:
Þá skal eg síðast en ekki sízt minnast
á sambandsmálið.
Stjórn Dana og þing hafa sýnt íslandi
það bróðurþel og þann sóma, að senda
hinga 4 fulltrúa til þess með óbundnu
Umboði að semja við stjórn íslands og
Alþingi sem jafn réttháa samningsaðilja
um samband landanna í framtíðinni. Til
þessarar farar hata Danir valið 4 af sín-
um vitrustu, viðsýnustu og hleypidóma-
lausustu mönnum, enda er árangurinn
af komu þeirra og samningaumleitunum
orðinn sá, að þeir annarsvegar og ís-
lenzka stjórnin og Alþingi hinsvegar hafa
orðið ásáttir um frumvarp til sambands-
laga milli Danmerkur og íslands, sem
gera má sér beztu vonir um að báðar
þjóðir fallist á, og ei það verður að lög-
um má vænta þess að það verði báðum
þjóðum til sóma og gagns, að ágreining-
ur sá, sem þvi miður svo oft hefir verið
milli bræðraþjóðanna, hverfi úr sögunni,
en bræðraþelið eílist og samvinnan auk-
ist til gagns fyrir báðar þjóðir.
Þetta þing er orðið hið lengsta, sem
haldið hefir verið. Það hefir nú staðið i
100 daga. En það er trúa mín, að það
muni og lengi i minnum haft, ekki vegna
þess, hve lengi það stóð, heldur vegna
hins, að það bar gæfu til að leiða til
lykta og komast að niðurstöðu um stór-
mál það, sem eg mintist á, að þvi er eg
treysti, á viðunandi hátt.
Eg bið drottinn að blessa störf þessa
þings og að varðveita fósturjörðu vora
á þessum mjög svo erfiðu háskatimum.
Samningarnir.
Eftirfarandi tilkynningu hefir fréttastofa
íslands (Islands Telegrambureau) 18. þ.
m. fengið leyfi til að birta og senda út.
Samningaumleitanir þær, sem hér hata
fram farið milli dönsku sendinefndarinn-
ar og Alþingis og islenzku stjórnarinnar,
hafa leitt til fullkomins samkomulags
um frumvarp til sambandslaga fyrir hin
tvö lönd í framtiðinni og þar með ætti
öllum hinum mörgu og gömlu deilumál-
um að vera ráðið til lykta.
Frumvarpið, sem var undirskrifað í
dag, hefir fengið samþykki íslenzku
stjórnarinnar og nær allir þingmenn hafa
fallist á það.
Þegar danska sendinefndin kemur til
Kaupmannahafnar, sem sennilega verður
um miðja næstu viku, mun frumparpið
íengið dönsku stjórninni í hendur ásamt
tillögu um, að það verði borið undir
samþykki danska ríkisþingsins.
Alþingi Islendinga var slitið í gær, en
búist er við því, að það komi saman aft-
ur í septembermánuði til þess að ræða
um frumvarpið. Og þegar Alþingi hefir
samþykt það, mun það verða borið undir
alþjóðaratkvæði.
Tilkynningu þessa hefir Fréttastofan
sent fréttastofum á Norðurlöndum til
birtingar í blöðum þar. Er það hið ein-
asta, sem birt verður opinberlega um
samningana, þangað til danska sendi-
nefndin er heim komin.