Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1918, Blaðsíða 15

Ægir - 01.07.1918, Blaðsíða 15
ÆGIR 115 leiddi það til þess, að skömmu síðar var haldin fundur i því skyni. Fundur þessi var vel sóttur, og voru allir sammála um, að stofna slíkt félag, ef flestir út- gerðarmenn, einkum í Bolungarvík, vildu vera með i þvi, og voru 3 menn kosnir til þess að ræða málið við Bolvíkinga og hlutu kosningu, Páll Halldórsson út- vegsbóndi, Hannes Jónsson formaður og Árni Sveinsson. Síðari hluta janúarmán- aðar héldum við fund í Bolungavík, og mættu þar flestir útgerðarmenn Bolunga- vikur, og nokkrir innan úr Djúpinu, og voru allir samþykkir þvi, að stofna fé- lagið og skyldi stofntundur haldinn í Hnífsdal í íebrúarmánuði næstkomandi. Á fundinum voru kosnir 3 menn, til ,þess að mæta á þeim fundi, fyrir hönd Bolvíkinga og Djúpmanna. Nálægt miðjum febrúar var svo stofn- fundur haldinn i Hnífsdal, samþykt lög fyrir félagið og stjórn kosin, en jafnframt ákveðið að félagið ekki skyldi taka til starfa fyrri en í byrjun næsta hausvertíðar. Það var meðal annars ákveðið i lög- um íélagsins, að fyrir utan ákveðið hundraðgjald af öllum þeim bátum sem vátrygðir væru, skyldi vera til frekari tiyggingar, samábyrgð allra þeirra manna er i félaginu væru, hlutfallslega eftir þeirri upphæð, en þeir hefðu vátrygða. Þegar til þess kom að nota félagið voru undirtektir miklu daufari en vænta mátti. Fáir höfðu á móti að borga ið- gjaldið, en flestum var illa við sam- ábyrgðina. Það bar því nauðsyn til að úlvega einhvern varasjóð, og bað þvi stjórn félagsins þingmenn kjördæmisins, að fara þess á leit við Alþingi að það veitti nokkra uppliæð í því skyni. Þetta leiddi til þess, að Alþingi veitti sýslu- nefnd ísafjarðarsýslu 4000 krónur til ráðstöfunar handa ábvrgðarfélagi á Vesl- fjörðum. Árið 1894 kaus sýslunefndin 5 manna nefnd til þess, að gera tillögur um ráð- stöfun þessara 4000 króna, og hlutu kosningu: alþingismennirnir Skúli Thor- oddsen og Sig. Stefánsson, verzlunarstjóri Árni Jónsson, hreppstjóri Guðm. Eiríks- son, og kaupm. Árni Sveinsson. Um þessar mundir byrjuðu nokkrir útvegsbændur á fiskiveiðum með þilbát- um. Nefndin taldi þvi réttast, að láta þetta ábyrgðarfélag sérstaklega ná til þeirra, og breyttu lögum félagsins eftir því, og nefndi það »Þilskipaábyrgðarfélag Vestfirðinga«. Á sýslufundinum 1895 voru lög þessi samþykt, og kosnir i stjórn fé- lagsins verzlunarstjóri Árni Jónsson, konsúll H. S. Bjarnason og kaupm. Árni Sveinsson. Það sýndi sig fljótt, að þilskipaútvegur bænda borgaði sig illa og eftir fá ár var hann fallinn úr sögunni, en um aldá- mótin byrjuðu vélabátarnir að ryðja sér til rúms, og var þá nafni félagsins enn breytt, (að mig minnir sinu upprunalegu nafni) »Bátaábyrgðarfélag ísfirðinga« og lögunum breytt í samræmi við það, en þegar árabátarnir lögðust niður, og fé- lagið að eins var notað fyrir vélbáta, fékk það sitt núverandi nafn. Árið 1904 bættu afskifti mín af þessu félagi svo ekki er mér kunnugt um gang þess síðan, en ekki man eg eftir því, að Alþingi hafi veitt annann styrk en þær áðurnefndan 4000 krónur. Reykjavik 6. júlí 1918. Arni Sveinsson. Leiðrétting í síðasta tbl. Ægis slendur svo á bls. 87, 11. 1. að neðan. »En það verð féll um 100%«, á að vera 50°/o.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.