Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.1918, Side 8

Ægir - 01.07.1918, Side 8
108 ÆGIR að friður er kominn á, að jrmislegt lækki þá í verði frá því sem er og þar á með- al verða bátar og skip, og sú eign, sem nú er 70—80.000 kr. virði, verður ef til vill eftir 2—3 ár óseljanleg hærra verði eu 30.000 kr., ef eigandi þá vildi losa sig við hana og þess verða menn einnig að gæla. IJað er ekki svo langt síðan, að þjóðin raknaði úr miðaldamyrkrinu og ekki lengra en það, að flestum er það í fersku minni, þó eg telji vist að fáir vilji við það kannast, en greinileg takmörk milli miðalda og nútíma er síminn; hann breytti öllu og breytingin varð svo snög'g, að enn höfum við ekki getað orðið framförum samferða. Þjóðiuni er lagt það til lasts, að hún sé eyðslusöm, en gæta verður þess, að árin eru ekki mörg, sem álmenningur hefir haft steypta mynt milli handa og þótt einstakir menn kunni að fara með peninga þá má ekki ællast til þcss, að heil þjóð læri slíkt á svipstundu. Aðrar þjóðir hafa einnig þurít sín lærdómsár til þess á réttan hátt að hagnýta mynt, banka, sima og járnbrautir. Þessi skjóla breyling hefir einnig haft áhrif á útveg landsins og ýmislegt gott og gamalt verið lagt niður og orðið að vikja úr rúmu fyrir svonefndum fram- förum. Það er í alla staði rétt að kasta því burtu sem ónýlt er, en engu nýtilegu má gleyma eða vanrækja, því það getur ávalt komið að liði. Botnvörpuskipaút- gerðin er ung hér á landi. Eftir að hún byrjaði, þá þóttu kúttarar óhafandi, þegar þeir komu hingað til lands, þóttu engin önnur skip sjófær og smáskip og skonnortur gátu ekki fcngið menn og voru lagðar upp, en þær og smáu þil- bátarnir höfðu lagt sinn skerf til að höggva skarð í róðrarbáta-úlveginn. Þannig hefir þessi hringferð verið og nú er hún á enda og önnur að byrja, og er nú farið að taka gömlu aðferðina upp aftur og mikið kapp lagt á að koma upp róðrarskipum. Öll hringferðin stafar af því, að fiskimenn eru sem aðrir menn, þeir vilja helzt vera þar sem þeim líður bezt. Þeim leið betur á þilbátunum og voru öruggari um lif silt, en á hinum opnu skipum og svo kom að þvi, að allir vildu vera á skútu; sama er að segja um kúltarana, þar voru stór og traust skip og þangað vildu allir o. s. frv. Svo kom að því, að fjöldi kúttara var seldur út úr landinu og er það þrent, sem aðallega kom þeirri sölu á stað. Fyrst, að fáir vildu á þeirn vera, var farið að leiðast skakið, annað, að menn voru afardýrir og hið þriðja að viðgerðir voru tiðar og áætlanir um þær stóðu sjaldan heima og fóru langt fram út því, sem tiltekið var, þegar skip voru tekin á land i því augnamiði. — Svo kom að því, að í haust sem leið var mcsli hluti botnvörpuskipanna seldur út úr landinu og þar við situr nú, þegar hringferðin byrjar á bátunum á nj’, sem aldrei hefði átt að vanrækja eins og hefir verið gert. Fari nú svo, að í haust verði hér fiskur fyrir, þegar mótorskipiu hin stærri koma af síldinni, þá mun mega ganga að vísu, að einhverjum þeirra verði haldið úti til þess að ná i fisk. En cr það lil hlýtar rannsakað, hvort ekki má stunda veiðar á þeim skipum, eins og áður var gert á þilskipum þ. e. án þess að eyða olíu í hverja ferð fyrir svo hundruðum og jafnvel þúsundum skiftir. Er það hugsanlegt að þau hin fallega löguðu skip og bátar liði það fyrir, að i þeim er mótor, að þau séu óhæf til allra sigl- inga og hreifinga nema að hinn sami mótor knýi þau átram, að hinir fallegu skrokkar komist ekki allra sinna ferða

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.