Ægir - 01.03.1919, Side 7
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS.
12. árg. | Reykjavi k7 M ar z, 1919. j Nr. 3.
Aðalfuridur
Fiskifélags íslands
var haldinn í húsi K. F. U. M. hér í bæ
laugardaginn 15. febrúar s. 1. kl. 6 e. h.
Fundarstjóri var í einu hljóði kosinn
hr. tannlæknir Brynjólfur Björnsson og
ritari fundarins Sveinbjörn Egilson.
Forseli Fiskifélagsins, hr. Hannes Haf-
liðason, tók þá til máls og mintist Þor-
steins heitins Sveinssonar og þess tjóns,
sem fráfall hans væri fyrir sjómannastétt
þessa lands.
Því næst las hann upp aðalreikning
félagsins, skýrði frá framkvæmdum og
gerðum stjórnarinnar á hinu liðna ári,
ýmsum styrkveitingum, starfi vélfræðings
Ólafs Sveinssonar og erindrekanna.
Er hann haföi lokið máli sinu, var
gengið lil dagskrár, og Iýsti fundarstjóri
Þvi yfir, að orðið væri frjálst.
Uagskráin var þessi:
L Bjargráðamálið.
p* Hafnamálið.
3- Vitamálið.
4. Kosning tveggja endurskoðunarmanna
fyrir næstu 4 ár.
Bjargráðamálið. Þar tók Hannes Haf-
iiðason fyrstur til máls, skýrði hvernig
það gengi og livað verið væri að starfa
því til styrktar og framgangs. Banka-
stjóri Benedikt Sveinsson talaði með
fyamkvæmdum og áframhaldi og benti
hl framkvæmda Vestmannaeyinga og gat
þess, að þeir þegar væru farnir að fá
tilboð um smíði á björgunarskipi.
Þá talaði Sveinbjörn Egilson nokkur
orð og gat þess, að fyrirætlanir manna
væru svo á reilci um alt fyrirkomulag,
sumir vildu eignast skip líkt og »Geir«,
en það áleit hann gróðafyrirtæki, sem
ælti ekkert skylt við þá hugmynd, sem
hann hefði um þetta atriði, en hún væri
sú, að skip væri á verði til þess að reyna
að bjarga mannslífum. Hvað skip til
björgunar áhrærði, benti hann á, að
ekki væri úr vegi að litast um á Skot-
landi, hvort ekki mundi þar heppilegt
far til sölu.
Hajnamálið. Hannes Haíliðason skýrði
frá hvernig það mál horfði við.
Ilr. Kirk er nú erlendis og er þar að
semja skýrslu sína um árangur athugana
þeirra, sem hann á ferðalagi sínu i sum-
ar gerði. Samkvæmt beiðni hans sendi
sljórn Fiskifélagsins honum í haust
skýrslu um hinar ýmsu veiðistöðvar
landsins, mannafjölda, tölu háta og býla
m. fl., sem hann ætlar að styðjast við í
skýrslu sinni.
Vilamálið. Hannes Hafliðason skýrði
frá hvernig komið væri þar. Frumvarp
vitamálastjórans tók skipstjórafélagið
»Aldan« til athugunar og gerði þar
breylingar, og enn er það mál ekki út-
kljáð. Fleiri töluðu ekki.
Þá var gengið til kosninga tveggja
endurskoðunarmanna reikninga Fiskifé-
lagsins og voru endurkosnir þeir tann-