Ægir - 01.04.1919, Qupperneq 9
ÆGIR
39
er að mestu leyti alt aðkomufólk, Sunn-
lendingar og Færeyingar, sem stunda þar
sjóróðra, sem koma á vorin og fara á
haustin. Fiskirí var þar mjög Iítið í sum-
ar. Á Skálum á Langanesi, sem er yzti bær-
inn á Langanesi að sunnanverðu, er mikil
útgerð. Þaðan var haldið út um 36 róðr-
arbátum í sumar. Alt það fólk sem rekur
útveg þennan, er aðkomið, — Sunnlend-
ingar og Færeyingar flest —, að undan-
teknum fáum mönnum sem eiga þar heima.
Fiskirí var þar mjög tregt í sumar, og
mun hafa komið þar á land um 1000
skpd. af fiski (reiknað í þurfiski) og er
það ekki Iíkt því að vera meðalár. Fiskur
var þar langt sóttur, og því erfitt að ná í
hann nema í góðum veðrum, enda gekk
fiskur aldrei þar á þau mið, er vanalega
áður hafði verið fiskað á. Líka bagaði
beituleysi.
Lending á Skálum er mjög slæm og
vart hægt að bæta hána mjög mikið nema
þá með afarmiklum kostnaði, sem spurs-
mál er um hvort borgaði sig. En eflaust
er þar fiskisælt pláss, því í kringum Langa-
nes er eíalaust eitthvert allra fiskisælasta
pláss á sumrin. Um lendingu eða hafnar-
bætur þar ætla eg að minnast á síðar. —
^að sem bagar mest á Skálum, eins og
stendur, er að þangað skuli ekki liggja
simi. Það er undarlegt að ekki skuli vera
húið að leggja þangað síma frá Þórshöfn,
sem mun vera um 40 kgtn. vegalengd, þar
sem jafn mikil framleiðsla af sjáfarafurð-
Um er, sem skiftir í meðalári nú um
hundruðum þúsunda króna. í meðalári
iæst þar j jan(j 3Q—40 róðrarbátum
frá 18—2000 skpd. af fiski fyrir utan ó-
grynni öll af lifur, bæði frá útgerðinni og
svo færeyiskum fiskiskútum sem koma
par þráfaldlega á sumrin og selja þar mik-
* af lifur. Staður sem slíka framleiðslu
efir og þetta á hreint og beint heimting
a Því, að sími sé lagður þangað, og það
án nokkurs styrks frá viðkomandi sveitar-
eða sýslufélagi, samanborið við marga aðra
útkjálkastaði, sem framleiða ekki í tugum
þúsunda krónum, þar sem þessi gerir í
hundrað þúsundum. Því það leiðir af sjálfu
sér, og sjá allir, að slík framleiðsla þarfn-
ast sinna sambanda. Vonandi er, að bæði
símastjórn og ríkisstjórn sjái þörf á síma-
leiðslu frá Þórshöfn til Skála og geri ráð-
stafanir til að símalína þessi verði lögð
á næsta fjárhagstímabili. Einnig væri vert
fyrir þingmann kjördæmisins að taka þetta
að sér og bera það fram á næsta þingi.
Þá hefi eg skýrt frá öllu ferðalagi mínu
á árinu.
Annað starf milt á árinu hefir mest ver-
ið að skrifa fiskideildunum hér eystra. Eg
fékk í sumar skeyti frá Fiskifélaginu um
að það hefði fengið útflutningsnefndina til
að taka á móti sölutilboðum á sjávaraf-
urðum frá útvegsmönnum, ef þeir gengju
í félag um slíkt, þetta tilkynti eg þá strax
deildum bréflega, en árangur af því hefir
víst enginn orðið, enda þótt eg hvetti til
slíks. Samtök í þá átt virðast enn erfið
meðal sjávarútvegarins, Allar þær upplýs-
ingar um sölu sjávarafurða, sem eg hefi
fengið frá Fiskifélaginu hefi eg líka sent
skriflega til allra deildanna. Einnig hefi
eg beðið alla deildarformenn að safna og
senda mér fiskiskýrslur úr veiðistöðvum
þar sem þeir eru, og eins beðið um að
þeir sendu mér skýrslu um starf deildanna,
helslu áhugamál þeirra, hvað marga með-
limi hver deild hefði og hverjir væru í
stjórn, ekki fengið svar frá neinni deild,
nema deildarformaðurinn á Fáskrúðsfirði
hefir gefið mér skýrslu um hvað margir
eru í hans deild og hverjir eru í stjórn
hennar. En vonandi tekst mér að fá þetla
frá deildum í vetur; að undanteknum fiski-
skýrslum, sem menn skilja ekki enn hvaða
þýðingu getur haft, að fá safnað og birt.
í haust og fram að nýári hefi eg starfað