Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1919, Blaðsíða 18

Ægir - 01.04.1919, Blaðsíða 18
48 ÆGIR Fiskiveiðar byrjuðu alment hér á Húsa- vtk 20. júní, bæði á vélabátum og róðrar- bútum, og var þá strax ágætis afli á grunn- miðum, en mjög var erfitt að geta haft nýja beitu, hér fékst engin sild og urðum við að láta sækja sildina til Akureyrar, svo þegar húu kom til Húsavíkur, eftir 10—12 stunda ferð, í miklum hita, þá var hún orðin slæm beita, því þessi smásíld þolir alls engan flutning; en þrátt fyrir þetta fiskaðist ágætlega, svo í júnílok var kominn meiri fiskur á land hér á Húsa- vík, heldur en var í júlílok 1917. Aflinn var mestur dagana 23.—28. júní, en úr því fór að minka um aflann, og um tíma fyrst í júlí, var að heita mátti alveg fiskilaust; en undir miðjan mánuð- inn fór afiinn heldur að aukast, en aldrei varð neitt líkur fiskafli og fyrst, og þó var nú notuð ný hafsíld í beitu, svo þeg- ar kom nokkuð fram í ágúst, fór fiskur altaf þverrandi, einkum til djúpanna, það hittust að vísu góðir róðrar en oftar sem aflinn var rír, enda var hér þá mjög óstilt tíðarfar, svo ekki var hægt að leita að fiskinum eins og gert hefði verið í góðum veðrum. Vélabátar liætlu flestir um 20 septem- ber, því að þá var ekki útgerðin farin að bera sig móti því að róa á róðrarbátum og mikið ódýrari útgerð. Eins og skýrslan ber með sér, þá hefir aflinn á vélbátana aldrei verið eins góður yfirleitt miðað við útgerðartímann, en þó er hæpið að vélbátarnir beri sig sökum þess, að alt var svo dýrt, sem til útgerðar þurfti. Þess má geta, að nú um mörg ár liefir ekki fiskur legið eins langt fram á vetur eins og i vetur. Það var allgóður afli í janúar, þó var ekki önnur beita en söltuð síld og Ijósubeila. Húsavík, 14. marz 1919. Jón Einarssan. Árið 1919 miðvikudaginn 12. marz var aðalfundur i fiskifélagsdeildinni »Garðar« haldinn á Hótel Húsavik. Fundarstjóri var kosinn Bjarni Benedikts- son. 1. Lesinn upp og lagður fram ársreikn- ingur félagsins og samþyktur í einu hljúði. 2. Kosin stjórn félagsins, og hlutu kosn- ingu: Bjarni Benediktsson, Jón Einarsson og Jónas Sigurðsson, og til vara: Páll Sigurðsson, Karl Einarsson og Sigurður Sigfússon. Endurskoðendur: Páll Kristjánsson og Sigurjón Þorgrímsson. 3. Stjórninni falið að senda suður afla- skýrslur eins og að undanförnu. 4. Jónas Sigurðsson kosinn til að mæla á fjórðungsþingi Fiskifélags íslands, sem ákveðið er að haldið verði i vor komandi á Akureyri. Sömuleiðis samþykt að borga honum ferðakostnað eftir reikningi, en enga dagpeninga. í forföllum Jónasar er Jón Einarsson kosinn, sömu skilyrðum. Fundi slitið (Sign.). Bjarni Benedikts*on. Landssjóðsskipin. Reikningur þeirra fyrir árið 1918 er nú fullsaminn og er niðurstaðan þessi: Á »Sterling« varð kr. 196,209,07 tap á árinu, en á »VilIemoes« 315,452,79 króna gróði, og á »Borg« sömuleiðis 414,668,21 króna gróði. Gróði á útgerð allra skipanna hefir því numið 533 þúsundum 911 krónum og 93 aurum.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.