Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1919, Blaðsíða 14

Ægir - 01.04.1919, Blaðsíða 14
44 ÆGIR íelsson, Eiríkur Einarsson og Arngrímur Bjarnason, sumir oft. Eftir miklar umræð- ur var aðalályktunin borin undir atkvæði og samþ. með öllum greiddum atkvæðum, og viðaukatill. (með 4 samhlj. atkvæðum). XIX. Þá var tekið fyrir 13. mál dag- skráarinnar. Mœling sjávarhita. Framsögumaður Arngrimur Bjarnason. Til máls tóku auk frams.m. Guðm. Kristjánsson og Eiríkur Einarsson. Svoliljóðandi álykun kom frá framsögu- manni: »Fjórðungsþingið skorar á stjórn fiski- félags íslands, að beita sér fyrir því, að mæling sjávarhita fari fram, sérstaklega á tímabilingu frá 1. júní til 1. nóv. a. m. k. af tveimur bátum á hverju svæði. Sé þess- um mælingum haldið áfram nokkur ár og niðurstaða þeirra birt opinberlega, svo séð verði áhrif sjávarhita á fiskigöngur um- hverfis landið«. Ályktunin var samþ. í einu hljóði. XX. Þá kom til umræðu 14. mál dag- skrárinnar. Landhelgisgceslan Framsögumaður Arngrímur Bjarnason. Aulc hans tóku til máls Kr. Jónsson. Samþ. að kjósa 3ja manna nefnd. Þessir kosnir: Sigfús Daníelsson ..... með 7 atkv. Jens Nielsson og ...... — 6 — Arngrímur Bjarnason ... — 5 — XXI. Þá var tekið f}rrir 15. mál dag- skrárinnar. Aflaskýrslur. Framsögumaður Sigfús Danielsson. Til máls tóku auk framsögum. Grímur Jónsson, Eirikur Einarsson, Jens Níelsson og Friðrik Hjartarson.' Svohljóðandi ályktun frá framsögum. samþ. í einu hljóði. »Fjórðungsþingið skorar á allar deildir fjórðungnum að annast um fljólar og ábyggilegar aflaskýslur frá sínu svæði. Jafnframt skorar fjórðungsþingið á fiski- þingið að hækka svo borgun fyrir afla- skýrslur að unt verði að birta þær, helst mánaðarlega í tímariti Fiskifélagsins«. Þá var gefið þinghlé til kl. 9 árdegis næsta dag. XXII. Skömmu áður en þinghlé var gef- ið, barst þinginu heillaóskaskeyti frá stjórn Fiskifélagsins. Þing sett að nýju kl 9x/2 árd. þ. 27. mars. XXIII. Þá lagði framsögum. nefndarinn- ar i 10 máli dagskrárinnar. Sími um norðurhr. Ísa/jarðarsýslu. Kristján Jónsson lagði fram svo hljð- andi ályktun: »Fjórðungsþingið telur það bráðnanð- synlegt vegna sjávarúlvegsins að »sími verði hið allra bráðasta lagður um norð- urhreppa ísafjarðarsýslu leið þá sem hér segir: Út Langadalsströnd að Unaðsdal, þaðan yfir Dalsheiði að Höfða, frá Höfða sæsími yfir að Kvíum, þaðan sími yfir Kvíarfjall niður Karlsstaðadal meðfram Veiðileysufirði, nálægt Steinólfsstöðum að Seleyri, þaðan sæsírni að Stekkeyri (Heklu) til Hesteyrar og frá Hesteyri sími til Látra í Aðalvík, og beinir því til Fiskiþingsins að skora á alþingi að hrinda þessu máli til framkvæmda hið allra bráðasta. Að gefnu tilefni lýsir fjórðungsþingið yfir því, að það telur loftskeytastöð á Hesleyri með símalínu til Látra ófullnægjandi«. Til máls tóku auk framsögum. Arngr. Bjarnason. Fylgdi ályktuninni ýtarlegt nefndarálil er liggur með þinggjörðinni. Ályktunin var því næst samþykt með öllum greiddum atkvæðum. Þá lagði framsögum. í 9 máli dagskr. Samvinna um kaup og sölu sjávarafurða, Grimur • Jónsson fram svo hljóðandi ályktun: a. »Fjórðungsþingið skorar á fiskiþingið,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.