Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1919, Blaðsíða 25

Ægir - 01.04.1919, Blaðsíða 25
ÆGIR 55 friðarskilmálarnir. Miðvikudaginn 7. maí var fulltrúum Þjóðverja á friðarfundinum birt uppkast* að friðarsamningunum, og fer hér á eftir útdráttur. Samningauppkastið tekur fram þau skil- yrði, sem bandamenn og þeirra sinnar setja af sinni hálfu fyrir því, að þeir semji frið við þýzkaland .... Þess vegna er í þeim sáttmálinn um þjóðbandalagið, og lögin um alþjóða verka- mannalög, sem áður hafa birst. Þýzkaland á að fallast á, að upphafnir sé samningarnir frá 1839, þar sem Belgía var viðurkend hlutlaust ríki, og á nú að viðurkenna drottinvald Belgíu yfir Mores- nei, í Belgíu og nokkrum hluta þess í t’ýzkalandi og á Þýzkaland að láta af hendi tilkall til Eupen og Malmedy í hendur Belgíu. Landamærin Frakklands megin verða þau sömu sem voru 18. júlí 1870, með tilskildum réttindum í Saar-héraði. Frakkland fær þannig Elsass og Loth- ringen. • Ekki má Þýzkaland hafa neinar viggirð- ingar eða vígi á 50 km. breiðri skák aust- an Rínarfljóts, né hafa vopnað lið eða nokkurs konar tæki til að greiða fyrir Lerútbúnaði á því svæði, og engar heræf- ingar fremja þar. Kolanámurnar í Saar-héraði fá Frakkar, en nefnd, sem alþjóðabandalagið skipar, á að stjórna héraðinu. Eftir 15 ár á alþýðu-atkvæði að skera úr um framtíð Saarhéraðsins. Þýzkaland viðurkennir fullkomið sjálf- stæði hins þýzka hluta Austurríkis, og einnig ríkis Tchekkó-slava og landamæri þess Þýzkalandsmegin verða þar sem landa- niæri Bæheims voru 1914. Þýzkaland lætur af hendi við Pólland mikinn hluta Austur-SIesíu og Pósen og þann hluta Vestur-Prússlands, sem er vest- an við Weichsel. Þýzkaland afsalar í hendur stórvelda bandamanna öllum nýlendueignum sínum, ásamt öllum réttindum, sem þeim fylgja. Það afsalar sér ennfremur öllum réttind- um og forréttindum í Maroccó. Þýzkaland viðurkennir verndarvald Breta yfir Egiptalandi og afsalar sér, frá 4. ágúst 1914, öllum samningum, sem það hefir gert við Egiptaland. Þýzkaland skuldbindur sig til þess, að láta afskiftalausa alla samninga, sem Brel- land kann að gera um Egiptaland við önnur ríki. Þýzkaland felst á að framselja Stórbret- landi þau réttindi, sem Tyrkjasoldán hét því, um frjálsar siglingar um Súes-skurð- inn. Ákvarðanir eru settar um eignir tilheyr- andi Þjóðverjum, er hafa borgararétt i Egiptalandi, og eru þær líkar reglum þeim, sem settar eru um sama efni í Maroccó og öðrum löndum. Ensk-egipskar vörur, sem sendar eru til Þýzkalands, skulu sæta sömu meðferð, sem breskar vörur. Vígin og hafnirnar í eyjunni Helgóland og Diine skulu ónýtast, og eiga Þjóðverjar að vinna að því og bera kostnað af því. Upp í hernaðar-skaðabætur skulu Þjóð- verjar greiða bandamönnum einn miljarð sterlings punda í skuldabréfum, er falli í gjalddaga ekki síðar en 1. maí 1921, og á fáum næstu árum fjóra miljarða sterlings- punda. Vextir af skuldum Þjóðverja skulu vera 5%, og greiðslur þær, sem ekki verða greiddar í gulli, mega greiðast með öðrum verðmætum eignum, verzlunarvörum eða verzlunarréttindum og einkaleyfum. Þjóðverjar viðurkenni rétt bandamanna til bóta fyrir kaupskipatjón það, sem þeir

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.