Ægir - 01.04.1919, Qupperneq 10
40
ÆGIR
mest að undirbúningi mótor- og stýri-
mannanámskeiðanna hér, sem voru vel
sótt héðan úr Seyðisfirði og víðar að, og
mér virtist það sýna sig, eins og eg hefi
haldið fram, að heppilegasti staðurinn
fyrir þessa kenslu hvortveggja er hér á
Seyðisfirði.
Hinar sérstöku skýrslur námskeiðanna
sýna hluttökuna og hvaðan þátttakendur
hafa verið. Hérmeð fylgir skýrsla stýri-
mannanámskeiðsins, sem eg vona að verði
birt í Ægir.
Hin helztu áhugamál austfirzkra útvegs-
manna eru nú þessi: Bygging fiskihafnar
á svæðinu frá Austurhorni til Hornafjarð-
ar, bygging vita á Papey og Slreitishverfi
með byggingu 3 smávila til umskiftingar
á Djúpavog, stofnun mótorvélaskóla á
Austurlandi, og stofnun mótorbátaábyrgð-
arfélaga í öllum verstöðum hér eystra.
Þessi mál öll koma að sjálfsögðu fyrir
fjórðungsþingið í vor og hefi eg hvalt al-
staðar, sem eg hefi getað, til að undirbúa
þessi mál, og er það þegar búið víðast
hvar í deildum nú þegar, hvað sum snertir,
Um fiskideildina hér á Seyðisfirði skal
eg vera fáorður, hún liefir mest siðari
partinn á árinu (þ. e. sljórn hennar) starf-
að með mér að undirbúningi námskeið-
anna og hefir að öllu leyti lagt fram kostn-
að þann, sem við þau liefir orðið fram-
yfir það, sem Fiskfélagiö hefir lagt til.
Félagsskapur í deildinni er góður og
áhugi mikill fyrir útvegsmálum; í deildinni
voru 'um áramót rúmir 50 meðlimir.
Héðan úr Seyðisfirði gengu til fiskiveiða
12 mótorbátar fyrir utan 1 mótorskúlu
sem gekk til síldarveiða og eilt þilskip,
sem gekk á þorskveiðar. Að auki gengu
hér margir róðrarbátar til fiskveiða. Físk-
afli var yfirleitt heldur í góðu meðallagi
og vísa eg þar til fiskiskýrslu yfir mólor-
báta úr Seyðisfirði er eg sendi Ægi.
Eg slæ svo botninn í þessa skýrslu mína
fyrir árið 1918, og lofa að reyna að láta
sjást belri árangur af starfsemi minni
þetta ár.
Virðingarfylst
Seýðisfirði, 20. marz 1919.
Herm. Porsteinsson.
Fj ór ðung,sþing>
Vestfirðinga 1919.
Ar 1919, þann 25. marz, var hið annað
reglulega fjórðungsþing fiskifélags Vestfirð-
inga sett af fj.forseta Arngrími Bjarnasyni.
Þingskrifari kosinn Friðrik Hjartarson.
Þessir fulltrúar voru mættir í þingbyrjun:
Frá fiskifél. »Framtíðin« Bíldudal Guðm.
Arason, sjómaður.
Frá fiskifél. Dýrfirðinga: Guðm. Kristj-
ánsson (samkv. umboði) verzlunarm.
Frá fiskifél. Súgfirðinga: Friðrik Hjart-
arson, kennari.
Frá fiskifél. »Þuríður Sundafylla« Bol-
ungarvík, Arngr. Bjarnason, fj.formaður.
Frá fiskifél. »Tilraunin« Hnífsdal, Jón
Hálfdánarson, kaupm.
Frá fiskifél. ísafjarðar:
1. Eiríkur Einarsson, skipstjóri.
2. Kristján Jónsson, ritstjóri.
Frá fiskifél. »Súðavíkur« Grímur Jóns-
son, oddviti.
I. Lögð fram kjörbréf fulltrúanna, og
var ekkert við þau að athugá.
II. Þá var samin og lögð fyrir þingið
svohljóðandi dagskrá:
1. Sjómannaskóli á ísafirði. Framsm.
Eir. Einarsson.
2. Vitamál. Framsm. Guðm. Arason.