Ægir - 01.04.1919, Qupperneq 23
ÆGIR
53
Síldarmatslög'in.
Undanfarið hefir verið nokkur umræða
i blöðunum um síldarmatslögin. Er það
eðlilegt. Bæði vegna þess hve stórfelda
þýðingu síldveiðin hefir fyrir þjóðina, og
ekki síður vegna hins hve stórlega menn
hafafa rekíð sig á um meðferð hennar,
þrátt fyrir núverandi síldarmatslög og ef-
laust góðan vilja raatsmanna til þess að
láta bætta verlcun á sild af þeim leiða.
En ei má leggja árar í bát vegna þess
að mistök hafa orðið með síldarmatið,
heldur benda á leiðír til bóta. Helzt þær
sem gefa mesta tryggingu fyrir umbótum
og eru umsvifaminstar.
Sú leið, sem fyrir mér vakir er að lög-
leitt verði mat á saltaðri síld eingöngu, en
núverandi mat falli alveg niður. Látum
hver og einn um það hvaða sild hann
saltar. Dómsorðið um nolhæfi og gæði
vörunnar er uppkveðið þegar hún er tekin
héðan til þess að flytjast á markaðinn.
Sjálfsögð afieiðing af þessu er að síldar-
eigendur myndu vanda alla meðferð síld-
urinnar þangað til matið væri farið fram.
Einnig yrði matið sjálft auðveldara til
framkvæmda og kostnaðarminna fyrir
sildareigendur en núverandi nrat. Enda
hafa Norðmenn og Svíar eingöngu mat á
saltaðri síld; er löggjöf okkar óhætt að
lara að dæmi þeirra í þessu efni.
í'litt álit er, að þegar á næsta þingi ætti
að breyta síldarmatslögunum í þessa átt,
Því i mínum augum og margra annara
nsei' matið á nýveiddri síld eklti tilgangi
sínum.
Þeir sem hafa trú á því myndu velja
Sei sjálfir matsmenn, ef um svo mikið
'ssri að ræða að verkstjórar þeirra kæm-
ust ekki yfir fullkomið eftirlit. Hefi eg
engu minni trú á þeim mönnum er síld-
areigendur veldu sjálfir, því þeirættu aðal-
matið yfir höfði sér, en þeim mönnum, er
stjórnskipuðu síldarmatsmennirnir útnefna.
Það mun sannast, að meðferð síldar
kemst ekki í golt horf, fyr en mat á salt-
aðri sild verður lögleitt.
Bolungarvík í janúar 1919.
Arngr. Fr. Bjarnason.
Námskeið
i meðferð og hirðingu mótora á Seyðisfirði 1919.
Námskeiðið byrjaði 15. janúar og stóð
yfir til 26. febrúar. Þátttakendur voru 25,
frá ýmsum stöðum á Austurlandi. Af 25
námssveinum yoru 18, sem sóttu um að
mega ganga undir próf, sem haldið var að
námskeiðinu loknu, en 11 stóðust prófið.
Neðanskráðir tóku próf og hlutu
í aðaleinkunn
1. Jón I. Helgason, Mjóafirði . 18 stig
2. Sig. í\ Guðmundsson, Seyðisf. 16 —
3. Jón Kr. Stefánsson, Seyðisf. 13 —
4. Jóhann Sigurjónsson, Seyðisf. 14 —
5. Hávarður Helgason, Seyðisf. 19 —
6. JentoftKristiansen,OfotenNorgel9 —
7. OttoW.Berg.RudköbingDanm. 16 —
8. Guðm. H. Árnason, Seyðisf. 16 —
9. Jón Sigurðsson, Djúpavogi 18 —
10. Þorgeir G. Jónsson, Seyðisf. 12 —
11. Júlíus B. Björnsson, Seyðisf. 19 —
Prófdómendur voru útnefndir af bæjar-
fógetanum á Seyðisfirði. þeir Friðbjörn E.
. Holm og Engelhart Svendsen, báðir vél-
smiðir á Seyðisfirði, ásamt kennaranum í
vélfræði Ól. Sveinssyni.
Ól. Sveinsson.