Ægir - 01.07.1919, Blaðsíða 22
92
ÆGIR
Ennfremur skal það tekið fram, að við teljum það alveg óviðeigandi, að stjórn
féiagsins hefir hvorki auglýst né á annan hátt séð um að maður væri fenginn til að
gengna erindrekastarfanum innanlands síðan Þorst. sál. Sveinsson féll frá, t. d. með
því að setja mann í hans stað lil bráðabirgða þartil Fiskiþingið kæmi saman; — við
hefðum talið setningu heppilegasta þartil útséð væri um, hvort gerðar yrðu breytingar
á því fyrirkomulagi á starfi þessu, sem verið hefir hingað til.
Reykjavik 26. júní 1919.
Br. Björnsson, Magnús Sigurðsson.
Efnahagsreikningur Fískifélags Islands 31. desember 1918.
E i g n i r
í sjóði við árslok 1918 ...................
Húsgögn og áhöld ..........................
»Ægir« alt upplagið..................... ...
Leiðarvísir í meðferð mótora...............
»Ódýr fæða« ...............................
Útistandandi skuldir:
a. »Ægir« kaupendur .................
» —»— eldri árgangar ................
b. Leiðarvísir í meðferð mótora......
c. »Ódýr fæða« ......................
lcr. 18559,54
— 1298,70
— 1217,20
— 348,00
— 390,00
— 1157,65
— 90,00
— 123,75
— 74,00
kr. 23258,84
Hannes Hafliðason.
Sveinbjörn Égilson.
Vitar og- sjómerki.
Á Selvogstanga er verið að reisa vita,
yzt á tanganum, þar sem Snjóhúsvarða
stóð, sem nú hefir verið rifin. Yitinn er
15. m. hár, rauðmáluð járngrind með 3
m. liáu ljóskeri ofan á. Vitinn verðm- hvit-
ur blossaviti, og sýnir 2 blossa á hverjum
10 selc. þannig: 0,5 sek. ljós, 2,5 sek. myrk-
ur, 0,5 sek. ljós, 6,5 sek. myrkur. Ljós-
krónar er 3. flokks. Hæð ljóssins yfir sjó
20 m., Ijósmagn 15 sm. Sjónarlengd 14
sm. Vitinn verður væntanlega kveiktur 1.
ágúst.
Arnarnesvitinn verður ekki kveiktur fyr
en seint í ágúst.
Prentsmiðjan Gutenberg.