Ægir - 01.12.1919, Page 8
126
ÆCxIR
hefir með höndum. Annað hvort ár eru
haldin Fiskiþing og velja þá deildir lands-
ins sína bestu menn til að sitja þau. þess-
ir þingmenn leggja svo fram á þinginu
áhugamál þau, er á Fjórðungsþingum
hafa verið álitin hin áhrifamestu og nauð-
synlegustu. pau eru rædd á þinginu og
annaðhvort send þegar til Alþingis með
áskorun um að það taki þau fyrir, eða
]>á að stjórn Fiskifélagsins er falið að
koma þeim í framkvæmd, enda ýms mál
svo, ao þeim verður ekki beint til þings-
ins, heldur verða að fara aðra Ieið.
Stjórnin gerir alt sitt til jxess, á ein-
livern veg að koma áhugamálum sjó-
mannastéttarinnar í framkvæmd. J?að
verkefni afhenda Fiskiþingin henni og það
er verkefni stofnunar þeirrar sem
heitir Fiskifélag íslands.
Stofnun þessi hefir skrifstofu og geta
menn þar fengið þær upplýsingar um flest
þau málefni, er slíkri skrifstofu her að
gefa.
Stofnunin gefur út tímarit, sem á að
fræða menn um ýmislegt er atvinnuveg
þeirrá snertir, flytja ritgerðir um það
er beíur mætti fara í útreiðslu skipa og
báta og m. fl.
Allir geta sent ritgerðir i tímaritið sem
vilja og ritlaun eru greidd þótt lítil séu,
því svo var aldrei til ætlast, að ritið yrði
að eiiis málgagn ritstjórans. í þau sex ár,
sem eg hef verið ritstjóri, hafa mér bor-
ist í hcndur ýmsar fræðandi hugvekjur
sem birlar liafa verið í Ægi, en þær eru
of fáar.
í skýrslu Páls ritstjóra Bjarnarsonar í
síðasta tbl. Ægis, er getið um deyfð í
deildunum og framkvæmdaleysi stjórnar-
innar, að mönnum finst vera.
Ef dcildir vildu ræða ýms málefni, sem
bent er á í Ægi, t. d. vöndun á útreiðslu
báía sinna, ýmislegt til öryggis lífi og
heilsu manna, góða meðferð á seglum,
gæfu hver öðrum skýringar og bending-
ar um hvernig þetta eða hitt færi best á
sjónum, söfnuðu nöfnum á hinum helstu
miðum í sínum veiðistöðum, svo þau
gleymdust ekki eins og Faxaflóamiðin
sum, hvcttu sjómenn til að tína fáeina
hnullunga úr vörunum endrum og sinn-
um i landlegu dögum og meta þær meira
en spilaborðið, þá yrði nóg efni til fund-
arhalda og sé það sönnun fyrir því, að
deild sé að lognast út af, að fundir séu
aldrei haldnir, Jxá er að halda fundi, nóg
er efnið, en alt það sem hér er upptalið
er einskisvert, því hinum rauða þræði í
öllum umkvörtunum um aðgerðarleysi
stjórnarinnar má fylgja og liggur liann
beint að hugmyndinni og orðmu v e r s 1-
u n. S t o f n u n i n F i s k f é 1 a g í s-
1 a n d s, sem að eins þrífst sökum þess,
að landssjóður með samþykki Alþingis
veitir henni fé, til þess að íhuga, greiða
fyrir og reyna að koma í framkvæmd
nauðsyn j amálum sj ómannastéttarinnar,
hún á að vera verslunarfélag, það er aðal
mergur málsins, að Fiskifélagið versli, þá
er alt gott og stjórnin dugleg.
Hvernig yrði sú verslun, sem Fiski-
félagið ætti að reka, styrkt af landsfé með
20,000 krónur í sjóði þegar best lætur,
það er það atriði, sem eg fæ ekki slcilið
og hef eg nú í nokkur ár liaft tíma og
tækifæri til að hugsa um það málefni.
Mér finst, að sú verslun, sem sæi um
kaup og sölu fiskideilda landsins yrði yf-
irgripsmikil og kostnaðarsöm. Félagið
misti landssjóðsstyrk og fengi útsvar í
staðinn og ætlu lögin að verða í gildi, þá
yrði að geta um það í þcim, að l'élagið
ræki verslun, en ekki skil eg hvernig ætti
að fá duglegan forseta til slíkra fram-
kvæmda, sem eftir lögum hefir enga vissu
fyrh' að geta lialdið starfinu nema 2 ár
og eftir almennu kaupgjaldi mundi enginn
fást í slíka stöðu nú undir 15—20,000 kr.