Ægir - 01.05.1923, Qupperneq 5
ÆGIR
75
stýrimannakenslunni hafði Krislján líka
seglasaum á vetrum og fengu nemendur
hans því jafnframt verklega kenslu, sem
mörgum mun hafa komið mjög vel.
Þegar það er jafnframt athugað að flestir
þeir menn sem lærðu hjá Krisijáni á
veturnar voru oftast hásetar hjá honum
á sumrin má með sanni segja að vera
þeirra undir hans hendi, var samhang-
andi skóli, enda urðu margir af hans
nemendum afburða stjórnarar, og eftir-
sóttir hæði af Vesturlandi og frá Faxaílóa.
A yngri árum var Kristján talinn mjög
áræðinn og hugaður sjómáður, og stjórn-
ari góður, enda var það einkenni ílestra
þeirra sem fengist höfðu við hákarlaveiðar
á opnum skipum, og lengi var því við-
brugðið hve vel honum tókst að ná höfn
á Haílrúnni með brotið stýri noiðan úr
Húnabugt í áhlaupaverði þegar mörg
skip fórust.
Þótt Kristján hafi búið stóru og mynd-
arlegu búi í Meðaldal — eftir þvi, sem á
Vestfjörðum gerist — þá hefir hann aldrei
búhneigður verið, hugurinn hefir jafnan
verið við sjóinn, eins eflir að hann hætti
skipstjórn sem hann stundaði óslitið í
35 ár.
Með seinni konu sinni Helgu Bergsdóttir
eignaðist Kristján fjögur börn, sem öll
eru uppkomin, tvær dætur giftar og tveir
synir ógiftir. Auk þess hafa þau hjónin
alið upp mörg fósturbörn ýmist að
nokkru eða öllu leyti. Meðaldalsheimilið
hefir lengi verið viðtekið fyrir rausn og
gestrisni, jenda svo í sveit komið, að
niarga ber þar að garði, og hafa allir
i'íkir og fátækir sömu sögu að segja,
enda hafa þau hjónin verið mjög sam-
faka með að gera gestum sinum komuna
sem ánægjulegasta, og var það auðséð á
silfurbrúðkaupsdegi þeirra hjóna, að
sveitungar þeirra höfðu kunnað að meta
starf þeirra.
Meðaldalsjörðina hefir Kristján aukið
og bætt mjög mikið, og húsað hana mjög
myndarlega enda notið þar góðrar sam-
vinnu konu sinnar, sem oft hefir orðið
að annast búskapin ein sökum fjarveru
mannsins.
Þólt K. A. liafi ekki haft líma eða
kringumstæður til þess að fást mikið við
opinber mál, þá hefir þó áhrifa hans
jafnan gælt töluvert bæði í og utan
hreppsnefndar.
Verði Fískiveiðasaga íslands einhvern-
tíma rituð, sem ekki ætli að liða á löngu,
þá æltu ekki nöfn Iíristjáns Andréssonar
og annara mætra manna að gleymasf,
sem orðið hafa til þess að leggja undir-
stöðuna að þeirri byggingu, sem aðal at-
vinnuvegur þjóðarinnar stendur á.
Þótl Krislján Andrésson sé nú hættur
sjómensku, þá mun þó áhrifa hans gæla
lengi enn meðal sjómanna vorra.
Vestfirðingur.
Sumargjótandi síldarkyn
við ísland.
Úr skýrslu Rjarna Særnundssonar.
Eitl af mörgu, er eg hefi reynt að fá
sem nákvæmasta vitneskju um við rann-
sóknir mínar, er lífshæltir síldarinnar og
alt eðli hennar. A þessum tíma, sem eg
hefi fengist við fiskirannsóknir, má segja
að sildin hafi fengið meiri og meiri þýð-
ingu fyrir landið, og þvi meiri orðið
nauðsynin á þvi, að kynnast öllum hátt-
um hennar. Eg liefi því reynt eftir mætti
að gera þetta, sumpart með eiginathug-
unum, sumpart með þvi að aíla mér
upplýsinga hjá þeim fiskimönnum, er