Ægir - 01.12.1923, Side 17
ÆGIR
195
Vestur-Húnavatnss.: Þórarinn Jónsson,
á Hjaltabakka.
Vestmannaeyjar: Jóhann Jósefsson.
Visur
úr ljóðabréfi til Ivars Helgasonar,
frá Halldóri Sæmundssyni 1884.
Man eg forðnm »Farsæl« þorðum setja
út á bláa ýsutún
aldan há þó gretti brún.
Hertu róður runnar móðuloga
vestur á Svið og vítt um mar
vega- kviðu -lengd ei par.
Oft þar góður afli bjóðast náði.
svo að hlóðum sigluhund
sels um slóð á skamri stund.
Man eg líka mastraflíkur þöndust
út á bláum eyjahring
oft í þráum landsynning.
Pú í stafni stóðst á drafnahéra
lék þín hönd um hjálmunvöl
hnýsulöndin yfir svöl.
Fjörð í Hafnar fleyttum Drafnarljóni;
vopna þundar vasklegir
voru stundum ölvaðir.
Greyptum mundum glösin undur friðu.
Laxa- mjúku -leiðum á
létum fjúka kvæðin þá.
Nú eg heima hrund hjá seima uni
eftir Hrannar orra klið
að formanna gömlum sið.
Þeir nær hættu hörðum slætti sverða,
settust búum sínum að,
seimabrú og festu’ í stað.
Svo í næði nutu gæða lífsins,
loga sjóar laugaðir
loksins dóu fjörgamlir.
Þeirra dæmi þykir Sæmunds-niðja
sér vel hæfa’ á seinni tíð
svo ef gæfan leyflr blíð.
Halldór Sæmundsson er Húnvetning-
ur; dvaldi nokkur ár á Vatnsleysuströnd,
flutti þaðan norður í Húnavatnssýslu,
bjó þar nokkur ár, og fluttist svo til
Vesturheims, og var þar enn á lífi fyrir
fáum árnm. í. H.
Atli í Vestmannaeyjum.
Siðastliðna vetrarvertíð gengu nær 70
mótorbátar í Vestmannaeyjum og öfluðu
um 25,000 skpd. af saltfiski, þar af full
22,000 af þorski, sem af fóru að eins 95
fiskar í skpd. eða að tölu alls hér um
bil 21/* milj. fiska. Af þessu veiddust eitt-
hvað um 2/s í net. Úr þorskinum feng-
ust 836000 I. (8360 hJ.) af lifur (2*/*
fiskur gerðu 1 1.) og 34830 kg, af sund-
maga (60 fiskar gerðu 1 kg.).
Þetta gerir í söluverði:
25000 skpd. af saltf. á 100 kr. 2,500,000 kr.
8360 hl. af lifur á 30 kr. 250.800 —
34830 kg. af sundmaga á
4/50 kr. kg. ........ 156,745 —
Samtals: 2,907,545 kr.
Við þetta bætast svo hrogn, hausar,
slóg og úrgangur, sem hefir orðið lítils
virði. Það má því vel segja, að allur
aflinn hafi orðið 3 milj. króna, og sé
honum skift niður á nær 70 báta þá
verður það vel 40,000 kr. á bát, eða um
10,000 kr. um mánuðinn þá c. 4 mán.
sem vertíðín stendur yfir. Dýr má þá
útgerðin vera ef hún gefur eigi mjög
góðan arð, og drjúgur er Vestmannaeyja
sjórinn.