Ægir - 01.04.1926, Side 19
ÆGIR
Kj5r á eiiskum botn-
yörpuskipum.
63
Skýrsla um. sjóvinnnnám*
skeiö í Vestmannaeyjum.
I vetur ritaði ég grein um fiskiveiðar við
ísland, sem ég bað Morgunblaðið fyrir og
kom hún út í því í smá bútum. í nefndri
grein var þess getið, að þegar svo væri
orðið upp sargað hér við land, að ís-
lenskum skipum yrði eigi haldið úti
vegna þess, hve útgerð hér er d5rr, þá
mundu útlendingar halda áfram veiðum
hér við land og halda eyðileggingunni
áfram á fiskislóðum landsmanna.
Kjör fiskimanna á botnvörpuskipum frá
Hull og Grímsby eru í apríl 1926 þessi:
Skipstj. 10% af neltó (£: 10. - pr. %)
Stýrim. 7,125% — — (£: 7-2-6 %)
Bátsmaður 49 sh. um viku, 4d af netló £
»Third hand« 45/6— — — 2d— — —
Yfir vélstjóri 68/3— — — 3d— — —
Undir vélstj. 59/6 — — — 2d — — —
Kolamokarar 38/6 — — — ld— — —
Hásetar 42/— — — 2d— — —
Matsveinar 42/--------— — 2d— — —
Alls 13 menn á skipinu.
£ = 22,15- ísl. kr. — Shilling = 110
aurar. — d. = penny, um 10 aurar.
Margt verður að breytast hér, einkum
húsaleiga, áður en íslendingar geta stund-
að veiðar fyrir kauptaxta þann og manna-
hald, sem nú er á enskum skipurn.
Þetta er tekið úr skipshafnarskrá tog-
ara frá Hull. Skipstjóri á þvi skipi kvað
húsaleigu hina mestu plágu, og kvaðst
verða að greiða um 40 £ um árið (um
900 kr.) fyrir tvilyft hús. í þvi eru 8
herhergi, baðklefi, W.C. og blómgarður
fyrir framan húsið og afgirt lóð að húsa-
baki. Fyrir slíka íbúð mundu 900 kr.
vart borgun fyrir 2 mánuði hér.
Subj. Egilson.
Fimtud. 12. nóv. 1925, fór ég frá Rvík.
áleiðis til Vestmannaeyja, eftir beiðni
forseta Fiskifélags íslands, til þess að
halda þar verklegt námskeið fyrir sjó-
menn. Mánudaginn 16. nóv. var nám-
skeiðið sett á Hofi í Vestmannaeyjum.
Þátltakendur voru 11 að tölu. Seinna
bættust við þrír, en einn af þeim mætti
sjaldan. Byrjað var á að kenna hnúta,
brögð og stanga kaðla. Einnig var kend
munnleg stærðfræði 1 tíma á dag.
Nokkur kvöld gengu úr vegna bilunar á
Ijósamótornum. Stærðfræðistímarnir voru
haldnir í barnaskóla Vestmannaeyja.
Nemendum var gefinn kostur á að vera
allan daginn, frá kl. 10 árd. til kl. 10
síðd. því vegna ýmsra anna gátu þeir
ekki altaf mætt á ákveðnum tíma. Nokkr-
ir stunduðu námskeiðið vel og voru alla
daga frá morgni til kvölds, en yfir leitt
var það heldur illa sótt, því sjaldan
mættu allir í einu. Einnig var kend neta-
bæting, stöngun á vír, viðgerð á segl-
um o. fl. Reiðar á báta voru gerðir, líuð
segl og bætt, mottur gerðar, klæddir
vantar o. fl. Einnig hélt ég nokkra fyrir-
lestra, um skoðun skipa, rekakkeri smá-
skipa, hirðingu segla, hirðingu báta o. fl.
Fjórir af þeim er námskeiðið sótlu, eru
formenn á bátum þar. Árangurinn var
ekki eins góður og hann átti að vera, en
ég tel það hafi verið til mikilla bóta, því
einmitt þeir menn, er sóttu námskeiðið,
voru fengnir til að standsetja ýmsa báta
eftir að námskeiðinu var lokíð. Námskeið-
ið byrjaði of seint; hefði átt að byrja 10
okt. og vera úti 10 des. Á þeim tíma eru
minstar annir og menn mundu helst gefa
sig að því á þeim tíma. Héraðslæknirinn
ólafur Lárusson hélt nokkra fyrirlestra