Ægir - 01.04.1926, Síða 23
Æ G I R
G7
völdin oft gefið dálitið lengri frest, ef
skirteini hafa orðið að endursendast; en
hinsvegar hafa menn enga tryggingu fyr-
ir, að framlenging á límanum fáist altaf.
Td þess að leiðbeina þeim, er þurfa
að senda uppruna-skírteini, hefi eg út-
fylt eitt eintak, sem jeg hefi sent toll-
yfirvöldunum hér, og hafa þau fallist á,
að ekkert væri hægt að þeim að finna;
en vegna þess, að mikið rúm þyrfti til þess
að birta það í blöðum, er því slept. Hefi
eg látið prenta skírteini þessi með spönsk-
um, islenskum og enskum texta, svo
menn eigi hægra með að átta sig á upp-
lýsingum og leiðbeiningum þeim, sem
prentaðar eru á bakhlið skirteinanna.
Að endingu vil eg geta þess, að útmá-
anir, stafavillur — hversu lítilfjörlegar
sem þær virðast vera — gera skírteinin
ógild. Séu skírteinin vélrituð, má ekkert
skrifa með bleki, og ógreinileg skrift
getur gert skírteinið ónýtt.
Bilbao, 3. apríl 1926.
Pórður Flygenring.
Kelvin-Sleeye mótorinn,
það er afar áríðandi fyrir alla þá sem
stunda sjávarúlveg, að nota eingöngu þá
mótora, sem hægt er að treysta. Kelvin-
Sleeve mótorinn hefir þegar sýnt það að
hann er þess verður að honum sé gaumur
gefinn.
Verksmiðjan leggur stöðugt áherslu á
að snn'ða vélarnar öruggar og ábj’ggilegar
í meðferð og notkun. þetta sannast af
heiðarlegum vitnisbuiði frá ánægðum
kaupendum og hinni stöðugt vaxandi sölu.
Verksmiðjan afhendir nú stöðugt yfir
40 mótora á hverri viku.
Vélin er ventlalaus en þó af fjórtakts-
tegundinni, sá úlbúnaður er mjög ein-
faldur og ábj’ggilegur og vélin þess vegna
alveg hljóðlaus.
Sveifarhúsið er olíuþétt og hefir ein-
göngu baðsmurningu og þess vegna engin
smurningsrör. — Á vélinni er séistakur
smyrjari sem annast smurningsviðhaldið.
Vélin hefir engar olíudælur, engin glóð-
arhöfuð, ekki mótorlampa, ekki loftgangs-
setning, ekki skifliskrúfu. Vélin nolar ódýr-
ustu steinolíutegund og benzín í 4 mínútur
við gangsetning, hún reykir ekki, sótar sig
ekki og er því afar sparsöm.
Kveikingin er með háspentu rafmagni
frá vatnsþéttum magnetor. Stórir mótorar
eru setlir í gang með fætinum.
Vélin er afar sterkbygð en ekki þung,
er hljóðlaus og tiltakanlega laus við hrisling.
Kelvin-Sleeve vélin er því þögul og
örugg í meðferð og notkun og skilar
góðum krafti.
Sérstök olíugjöf er fyrir hægan gang
með fastri skrúfu og hægt að framkvæma
langvarandi andóf, án þess að vélin kæli
sig eða sloppi.
Fleira mætti segja um þessa vélategund,
an afkoma mótorbáta-útgerðarinnar er að
mestu komin undir því, hvernig mótorinn
reynist og þess vegna er áríðandi að hann
sé traustur og ábyggilegur.
Olafur Einarsson.
Shipströnd.
Hinn 27. mars rak mótorbátur »lra-
foss« G. K. 479 eign Gísla Jónssonar í
Njarðvík, upp í Njarðvík og brotnaði
svo, að eigi verður við hann gert.
Hinn 3. april strandaði liinn nýi
botnvörpungur »Ása« eign Duus versl-
unar í Reykjavik. Hann strandaði við
Grindavík, var á heimleið austan frá
banka. Var þetta hin fyrsta fiskiferð
skipsins. Mannbjörg varð.