Ægir - 01.06.1926, Síða 11
ÆGIR
103
minna móti en venja er til á þessum tíma,
°g því hefir minna dregið úr saltfisks-
neyslunni en annars mundi hafa verið. Hitt
er ðrðugra að gera sér grein fyrir, hvort
neyslan hefir verið mikil eða lítil uppi um
sveitirnar, en gera má ráð fyrir, að það sé
hvergi nærri alt upp étið, sem þangað hef-
ir farið.
Hingað er nú á næstunni von á gömlum
fiski í 3 skipum, ,,Risoy“, ,,Samlanæs“ og
„Magna“, samtals líkl. kringum 1000 smál.,
þar af um 280 smál. frá Færeyjum (í
Risoy). Þessi tvö fyrnefndu skip eru þeg-
ar farin af stað, og verða því hér væntan-
lega fyrri part mánaðarins. En hætt er við
að „Magna* verði það síðbúin, að henni
lendi svo að segja sarnan við fyrstu nýju
farmana. Eftir því sem nú áhorfist virðist
mega búast við fyrstu förmunum laust eft-
ir mánaðamótin júní-júlí. Birgðir af göml-
um fiski, sem reikna má með hér til þess
tíma, verða því samtals um 2200 smál., og
er óhætt að fullyrða, að af því verði að
minsta kosti 1000—1200 smál. óseldar í
hyrjun mánaðarins.
Þess er getið í síðustu skýrslu minni,
að enda þótt gera megi ráð 'fyrir, að firn-
ingar verði þetta miklar, og sem vitanlega
verður að telja ofmiklar, þá væri ekki á-
stæða að búast við, að þetta eitt út af fyrir
sig þurfi að verða til að draga niður verð-
lagið á nýja fiskinum, ef ekki verða aðrar
ástæður til að valda því, t. d. lágt fram-
hoð á norska fiskinum. En nú eru einmitt
þær kringumstæður framkomnar, og það
virðist fyrirsjáanlegt, að verðið á
nýja fiskinum muni, í byrjun kauptíðar-
innar að minsta kosti, verða lángt undir
því verði, sem þá var, er þetta er skrifað.
Markaðsverð fyyir betri tegundirnar var
þá, eins og þar er sagt, uppundir 85 pes.
eða sem svarar 47/— cif. (þegar frá er
reiknað 4 pes. áætlaður hagnaður pr. 40
kg.). Núverandi markaðsverð. ca 80 pes.,
svarar aftur til ca 43/— cif., með sama
frádrætti fyrir áætluðum hagnaði. Hvor-
tveggja er þetta reiknað með gengi 34 pes.
pr. £, eins og þá var h. u. b., þegar þessi
fiskur var keyptur eða kom hingað. En
nú er fullyrt að nýr ísl. línu- og botn-
vörpufiskur hafi verið seldur hingað
fyrir 37/— cif., 10/— pr. 50 kg. minna
en svarar markaðsverðinu fyrir mánuði
siðan, og ca. (5/— lægra en sem svar-
ar núverandi markaðsverði. Með sama
útreikningi og fyr, og reiknað með því
gengi sem nú er„ ca 32 pes. pr. £, svar-
ar þetta verð til ca 69 pes.. markaðs-
verðs. Eins og áður hefir verið skýrt frá
mega innflytjendur hjer ekki reikna sjer
meiri hagnað en 4 pes. pr. 40 kg„ og er
því ekki annað sjáanlegt, en að þetta
muni verða markaðsverðið, þegar þessi
fiskur er hingað kominn.
Það nær nú engri átt að kenna alt
þetta geysilega verðfall eingöngu gömlu
birgðunum, þó miklar séu, enda er eins
og að ofan segir, verið að selja þær um
þessar mundir fyrir verð, sem liggur tals-
vert fyrir ofan það verð, sem virðist muni
verða á nýja fiskinum, og mér liggur við
að segja, að það sé þvert á móti nýi fisk-
urinn, sem að þessu sinni dragi verðið nið-
ur á eldra fiskinum. Sannleikurinn mun
þó vera sá, að hvort um sig verkar á hitt,
og hvorttveggja niður á við. En það sem
vitanlega hefir ráðið úrslitunum að þessu
sinni aðallega eru verðtilboðin frá Noregi,
sem þessar siðustu vikur hafa stöðugt far-
ið úr lágu í lægra, sem byrjuðu kringum.
eða fyrir miðjan síðastl. mánuð um 44/-—,
en eru nú komin niður í 36/— eða jafn-
vel enn minna. Nokkur af þeim erlendu
firmum, sem fást við fiskkaup á Islandi,
eða hyggjast að gjöra það, hafa trúlega
fylgt þessum Iækkandi ferli norsku tilhoð-
anna, og hafa gefið hér undir fótinn með
tilsvarandi verð, og það jafnvel meðan ísl.