Ægir - 01.06.1926, Qupperneq 26
118
ÆGIR
ir eru í sérstökum húsum og fara ekki út
nema við og við til æfinga og svo þegar
slys bera að höndum.
í Danmörku hafa björgunarbátarnir ein-
göngu fastar stöðvar og fara ekki út nema
til æfingar og þegar slys bera ða höndum.
h2n þó björgunarbátarnir í Danmörku séu
algerlega staðbundnir, er tala bjargaðra
lándhæst þar i landi, af þessum þremur
Norðurlöndum. Ef dæma ætti gangsemi
björgunartækjanna eftir því hvað inörguin
mannslífum hefur verið bjargað frá dauða
i hverju landinu fyrir sig, er Danmörk lang
hæst. En það er tæplega rétti mælikvarð-
inn, því ólíkir staðhættir o. fl. gerir það að
verkum, að sin aðferðin á best við i hverju
landinu fyrir sig, og það sein best á við í
einum stað hentar ekki öðruin o. s. frv.
Þó það geti ónevtanlega verið mikils
virði, að kynnast þessum málum hjá ná-
grannaþjóðum vorum, þá er ekki þar með
sagt, að hér á landi eigi það sama við, sein
vel reynist þar. Ég býst fremur við, að
þó hér verði eitthvað gert til þess í fram-
tíðinni, að draga úr þeim slysum, sem hér
hafa verið svo tilfinnanleg á undanfar-
andi árum, þá verði þau tæki, sem notuð
kunna að verða á ýmsan hátt frábrugðin
þeim sem tíðkast annarstaðar — þar eð
kringumstæður og staðhættir eru alt aðr-
ir hér en þar.
Hilt ætti öllum að vera ljóst, að margt
er hægt að gera hér sem annarstaðar til
þess að draga úr slysum á sjó, og með góð-
um vilja og bestu manna ráðum, efa< ég
ekki, að mikið má þar að gera.
Konungskoman.
Að morgni hins 12. júní varpaði kon-
ungsskipið „Niels Juel“ akkerum á
Reykjavíkurhöfn kl. 9, og voru herskipin
„Gejser“ og „Fylla" í fylgd með því.
Hátíðahöldum og öðru í sambandi við
komu konungs Kristjáns hins tíunda og
Alexandrinu drottningar, hafa flest blöð
landsins lýst svo greinilega, að ekki virðist
ástæða til að fjölyrða um það hér.
.1.
I
Jón Þórarinsson
fræðslumálastjóri andaðist 12. júnímán.,
72 ára að aldri. Hann var sonur Þórar-
ins Böðvarssonar prófasts í Görðum. Varð
stúdent 1877. Las um hríð guðfræði við
Hafnarháskóla, en lauk ekki prófi. Varð
1882 skólastjóri á Flensborg og 1908
fræðslumálastjóri. Hann sat á þingi sem
2. þingmaður Gullbringu- og Ivjósarsýslu
1886—1899. Vinsæll maður og vel látinn.
Hal'ði hann lengi verið heilsutæpur, en
hafði þó oftast fótavist. Að kveldi hins 12.
var hann á gangi á götu og hné þar niður
og dó ei'tir tvo tíma.
Formaður dýraverndunarfélagsins var
hann lengi og ritaði inargt um það, sem er
áhugamál þess félagsskapar, og hin síð-
ustu skrif hans voru að taka málstað illa
útleikinnar sauðkindar, sem gæti orðið
þeim enn minnisstæðari, sem hafa þá hugs-
un, að sama sé hvernig farið er með hin
ómálga dýr, er þeir minnast þess, að það
voru síðustu skrif Jóns heitins Þórarins-
sonar, að taka málstað dýrs, sem ekki
gat kvartað og ekki sniiið sér til neins, er
því leið illa.
Jón Þórarinsson var jarðaður í Görðum
hinn 23. júní.
EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
ÁRIÐ SEM LEIÐ
Ársreikningar félagsins eru nú birtir og
til sýnis hluthöfum þessa dagana i skrif-
stofu félagsins.
Hagur félagsins hefir farið batnandi á ár-
inu sem leið, arður vaxið og skuldir mink-
að.