Ægir - 01.12.1926, Blaðsíða 10
ÆGIR
242
úti á landi, og var komið til Akureyrar.
Síðan það fór þaðan spurðist ekkert til þess
þar til 13. þ. m„ að fullyrða má að það hafi
farist.
Á sunnudaginn 12. des. kom maður til
Borgarness frá Ökrum á Mýrum, og til-
kynti sýslumanni þar, að lík hefði rekið
á Ökrum' á laugardaginn. Á því fundust
þau skilríki að hægt var að sjá nafn
mannsins. — Hét hann Steingrimur Han-
sen. En ekki var hægt að átta sig á neinu
því er á líkinu var hvaðan hann væri með
vissu, en líklegt þótti, að hann væri að
norðan og þá helst frá Sauðárkróki.
Ennfremur hafði rekið á fjöru á Ökr-
um allmikið flak úr stórum skipsbát, en
ekki var skipsnafn þar á, sömuleiðis hluta
úr stórum mahogniskáp og eitthvað fleira.
Sýslumaðurinn i Borgarnesi lét stjórn-
arráðið vita um atburðinn. Það leitaði til
hæjarfógetans á Akureyri til þess að fá að
vita um farþega þá, er verið höfðu með
skipinu. Kom þá í ljós, að Steingrímur
Hansen hafði verið einn þeirra. Hann var
18 ára gamall og var frá Sauðá við Sauð-
árkrók.
Með því er fengin full sönnun þess, að
þarna hafi í sjóinn farið milli 20 og 30
manns, erlent og innlent fólk. Er mikill
harmur kveðinn af eftirlifandi ættingjum
og vinum þess látna fólks.
Þrír aðrir farþegar voru á skipinu að
norðan, sem kunnugt er:
Theodór Bjarnar, verslunarmaður, Rauð-
ará við Reykjavík, ungfrú Karólina Jónas-
dóttir 18 ára gömul, Strandgötu 35 á Ak-
ureyri og Ingibjörg J. Loftsdóttir, 22 ára,
Gránufélagsgötu 51, Akureyri.
Þó ekki sé getið um fleiri farþega að
norðan, er ekki ómögulegt, að fleiri hafi
verið með, án þess kunnugt væri á Ak-
ureyri.
Fimti íslenski maðurinn var á skipinu,
Guðbjartur Guðmundsson vjelstjóri. Hafði
hann farið á „Balholm" þessa ferð. Hann
mun hafa verið ættaður að vestan, en átti
heima hjer í bænum á Sólvöllum. Kvong-
aður var hann og átti eitt uppeldisbarn.
„BaIholm“ var frá Bergen og var smíðað
1918, 1610 smál. að stærð, brúttó. Hafði
það verið hið vandaðasta skip að öllu
leyti. 18 manna skipshöfn var á þvi. Skip-
stjórinn hjet Waage, ungur maður, ný-
kvæntur, og hafði konu sína með sjer þessa
ferð til íslands.
„BalhoIm“ hafði tekið um 16 þús. pakka
af þurfiski á höfnum úti um land, hingað
og þangað. Það var alt vátrygt.
Með skipinu var sendur frá Akureyri
allur póstur austan Akureyrar, verðpóst-
ur og annað. En hve miklu verðpósturinn
hefir numið, er ókunnugt enn. En vátrygð-
ur var hann, svo póstsjóður bíður engan
skaða.
Hinn 13. des. siðari hluta dags bárust
hingað fregnir um að meira hefði rekið í
nánd við_ Akra, svo sem bjarghringur
merktur „Balholm", stólar, mynd af kven-
manni o. fl„ og er þvi að fullu gengið úr
skugga um, að skipið hafi farist með öllu
sem á því var og í, en með hvaða hætti
slysið hefir horið að höndum, eru heimug-
legheit hins mikla hafs.
Telja má nokkurnveginn víst, að skipið
hafi farist nóttina milli 6.-7. desember.
Lik Theodórs Bjarnar hefir fundist; var
það flutt til Reykjavíkur og fór jarðarför-
in fram 23. des.
E.s. „Nystrand".
Hinn 25. nóvember s. 1. barst sú frjett
hingað til Reykjavíkur, að eitt skipstrand
enn, hefði orðið austur á Söndum. Var það
kolaskip til stórkaupmanns Hallgríms
Benediktsonar & Co.
Hingað fylgdi frjettinni að einn maður