Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1929, Blaðsíða 15

Ægir - 01.01.1929, Blaðsíða 15
ÆGIR 7 að salta til útflutnings fyr en 25. júlí, notaðist ekki sú ganga. En þegar sá lími kom, að leyft var að salta, var síldin farin, eða að minsta kosti náðist hún ekki, og var svo með köflurn, að sækja varð sild til beitu norður á Siglufjörð, því útgerðarmenn höfðu ekki Iiugsað um að koma beitusíld í ís- lrúsin meðan gangan var á fjörðunum. Saltsíldarframleiðslan var því miklu minni á Austfjörðum en árið á undan, eða 3,472 tunnur á móti 18,333 árið 1927. Saltfiskframleiðslan aftur á móti varð miklu meiri, eða til 1. des, 42,366 skpd., á móti 26,812 skpd. árið áður. En þess ber að gæta, að í þessum töl- um er nreðtalinn sá fiskur, sem keyptur er af útlendum skipum. En að þvi var gert meira á þessu ári en undanfar- andi; sömuleiðis er þarna meðtalinn afli botnvörpungsins Andra frá Eskifirði, sem gerður var lit þaðan á þessu ári. fram i apríl, og um miðjan maí voru fvrstu farmarnir að fara frá landinu af sólþurkuðum fiski. Eitthvað af smá- sendingum var farið áður; sömuleiðis eitthvað af liúsþurkuðum fiski. Salan á nýju framleiðslunni bvrj- aði þvi mjög' vel, og var verðið til að byrja með um 133 kr. skpd. af stór- fiski, og 84 kr. á labradorverkuðum fiski. Eftir að búið var að semja um fyrstu farmana, og mikið framboð fór að koma á fiskinum, fjell þetta verð fljótt, og var um og eftir miðjan maí, komið niður i kr. 125,00 á stórfiski. Þar sem þurkar voru allan júni og júlí mán- uð, og framboðið mikið af verkuðum fiski, hjelt verðfallið áfram, og um miðjan júlí var verðið komið niður í kr. 118.00 skpd. fyrir linufisk nr. 1, en hlutfallslega lægra fyrir netafisk, og aðrar lélegri tegundir. Eftir þetta fór verðið að smáhækka aftur, og fór jafnt hækkandi fram i lok október mánaðar. Var þá allur fiskur seldur, og var verð- ið þá komið upp í kr. 160.00 af stór- fiski, og' 90 kr. skpd. af labradorfiski. Mun mest af stórfiskinum hafa verið selt fvrir ca. 130 kr. skpd. í Noregi var verðið töluvert hærra, einkum síðari liluta ársins. Virðast Norðmenn liafa haldið töluvert betur á sinni sölu en við, enda er mikið af fiskinum komið þar yfir á fáar hendur, með myndun fisksölusamlaga þeirra, sem orðin eru mjög yfirgripsmikil. Verðið þar var í byrjun ársins 118 kr. norskar skpd., en fór þar lækkandi eins og' hjer, fram til 22. júní, að það er komið í 94 kr. norskar slcpd. Eftir það fer verðið jafnt og stöðugt hækk- andi, fram i lok október mánaðar, að það er komið upp i 144 kr. norskar, eða 172 kr. íslenskar. Tilraunum þeim, sem um getur í sið- Sala sjávarafurða. Sala sjávarafurða gekk mjög greið- lega á árinu enda var hreinni grund- völlur að byggja á, fyrir saltfiskinn að minsta kosti, en undanfarin ár, þar sem birgðir l)æði í framleiðslulöndum og i neytendalöndunum voru minni en und- anfarandi ár. Á Islandi voru birgðirnar 1. jan. 1928 57000 skpd. en 79000 og 107000 árin áð- ur. I Noregi voru birgðirnar ca. 50000 skpd. en ca. 94000 tvö undanfarandi ár. Verðið var því liækkandi seinni hluta ársins 1927, þegar það fór að verða augljóst, að þess árs birgðir mundu ekki endast lengur en þangað hl nýja framleiðslan færi að komast á ^narkaðinn. Veðráttan var líka mjög hagstæð til fiskverkunar eftir að kom

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.