Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1929, Blaðsíða 17

Ægir - 01.01.1929, Blaðsíða 17
ÆGIR 9 til Englands, og liafa Englendingar verkað hann, og selt í nýlendum sinum, þar hafa þeir næstum ótæmandi mark- að fjTrir slika vöruu. Að vísu er það mik- ið fjárhagslegt tap, að missa verkunar- launin út úr landinu, en þegar það er athugað hvað erfitt eða jafnvel ómögu- legt er fyrir okkur, að ná þessum við- skiftum, og að sá fiskur er ekki seldur i samkepni við okkur, á þeim stöðum sem íslenskur fiskur er boðinn fram á, þá er þó gott að geta komið honum burt úr samkepninni á aðra staði. Verðið á blautfiskinum liefir verið hátt, og hlut- fallslega hærra, en á verkaða fiskin- um. Hefir mikið af honum verið selt fvrir 40—55 aura pr. kg. f. o. b. af þorski og upsa á 24—34 pr. kg. Þegar það er athugað að saltfisk- framleiðsla okkar, er til 1. des. i ár ca. 90 þús. skpd. rneiri en árið áður, þá er það auðsjeð að þessi útflutningur af óverk- uðum fiski hefir meðal annars hjálpað til að minka birgirnar, og þar af leið- andi til að forða verðfalli, því að út- lit er fvrir að birgirnar á áramótun- um, ætli síst að verða meiri, en þær voru við byrjun ársins. Það má því gera ráð fyrir, að dágott verð verði á fiski fram e.ftir árinu sem nú er að byrja, ef ekki koma neinar ófyrirsjáan- legar truflanir til greina. A flestum öðrnm sjávarafurðum hef- ir verðið verið líkt á þessu og undan- farandi ári, nema síld og meðalalýsi, en a því hefir verið mikil eftirspurn og verðið mjög liátt, og þó hefir sú fram- leiðsla margfaldast hjá okkur, síðan farið var að hræða lifrina nýja um borð 1 stærri skipunum og sönmleiðis með baettum bræðslustöðvum í landi. Þó ekki sé enn uppgefið livað síldar- einkasalan greiðir fvrir síldina í ár, þá er þó vitanlegt, að mun hærra verð fæst fyrir hana i ár, en árið áður. Eftirspurn eftir fiskmjöli og þurkuð- um þorskbeinum liefir verið mjög mik- il, og verðið töluvert hærra en undan- farandi. Er nú orðin stór framför, með nýtni á öllum fiskúrgangi, frá því sem áður var, og eru menn nú farnir að sjá, að hér er um mikið verðmæti að ræða sem ekki má láta ónotað. Þó er grútnum af lifrinni, þegar búið er að ná úr honum lýsinu, viðast livar kast- að, en það má búast við að það verði ekki lengi. Því sé hamí malaður og þurkaður, fæst úr honum lifrarmjöl sem er dýr og mjög eftirsótt vara. Tollur á fiski á Spáni, hefir verið 25,60 pts pr. 100 kg. alt árið, var búist við að hann hækkaði upp í 32 pts. pr. 100 kg. frá þessum áramótum, en kom- ið hefir tilkynning frá sendiherra Dana frá Spáni, að tollurinn verði óbreyttir, 25,60 pts næsta ár. Síldveiðin. Síldveiðin gekk mjög vel á árinu, og má telja að þetta ár hafi verið með allra hestu árum livað veiði snertir á því sviði. Þó var ekki saltað eins mik- ið og stundum áður, og mun það að nokkru leyti hafa stafað af lireyttu fyrirkomulagi á sölu síldarinnar, ]>ar sem það var fyrsta ár Sildar- einkasölunnar. Margir voru óvissir um, hvernig það fvrirkomulag mundi gef- ast, og voru því nokkrir af þeim, sem áður liöfðu liaft mikla síldarverkun, sem drógu sig algeralega til baka og fengust ekki við síldarverkun. Reglugerð sú, sem út var gefin um verkun á síld, og sem koma átti í stað laga um mat á síld, kom heldur ekki út fyr en rjett áður en síldarverkunin átti

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.