Ægir - 01.07.1933, Síða 3
ÆGIR
MÁNAÐARRIT FISKIFÉL AG S ÍSLANDS
26. árg.
Reykjavík. — Júlí 1933.
Nr. 7.
Viðskiftasamkomulag
milli íslands og Sameinaða Konungsríkisins Stórabretlands og
Norður-írlands.
Gert I London 19. maí 1933.
Ríkisstjórn lslands og rikisstjórn Sam-
einaða Konungsríkisins Stórabretalands og
Norður-írlands, sem báðar óska að greiða
fyrir og eíla verzlunarviðskiptin milli
konungsríkisins íslands annarsvegar og
Sameinaða Konungsríkisins Stórabret-
lands og Norður-írlands hinsvegar, hafa
gert með sér samkomulag um það, sem
hér fer á eftir:
1. grein.
Af vörum þeim, sem taldar eru í skrá
þeirri, sem fest er við samkomulag þetta,
°g framleiddar eru eða tilbúnar í Sam-
einaða Konungsríkinu, hvaðan sem þær
koma, skal eklci krafist annara eða hærri
tolla eða gjalda við innflutning til lslands
eo þeirra, sem taldir eru upp í skránni.
2. grein.
L Af nýjum eða söltuðum fiski (öðr-
Ul» en skelfiski), sem fluttur er frá ís-
landi til Sameinaða Konungsríkisins skal
ekki krafist annars eða hærri tolls eða
gjalda en 10% verðtolls.
2. Rikisstjórn Sameinaða Konungsrík-
lsins skuldbindur sig til, ef sett verða
ákvæði til þess að takmarka magn af
fiski, sem leyft sé að flytja inn til Sam-
einaða Konungsríkisins, þá skuli heildar-
magnið af nýjum fiski og óverkuðum
saltfisk, sem heimilt sé að ílytja inn frá
íslandi, öðrum en laxi, silung, ál eða
vatnafiski, ekki fara neitt ár niður fyrir
354,000 cwts., enda séu 104,000 cwts. af
þessu minnsta magni.óverkaður saltfiskur.
3. Ríkisstjórn Sameinaða Konungsrikis-
ins skuldbindur sig til þess að setja þau
ákvæði, að endurgreiddur skuli tollur,
sem greiddur hefur verið af nýjum fiski
eða óverkuðum saltfiski við innflutning
til Sameinaða Konungsríkisins, ef fiskur-
inn er fluttur út sem þurkaður saltfisk-
ur eftir að hafa verið verkaður í Sam-
einaða Konungsríkinu úr nýjum fiski eða
óverkuðum saltfiski fluttum frá íslandi.
4. Núgildandi ákvæði um, að þurkaður
saltfiskur, sem framleiddur hefir verið á
íslandi, skuli vera undanþeginn innflutn-
ingstolli, ef hann er fluttur til Samein-
aða Konungsrikisins einungis til þess að
verða endurútflutlur þaðan eftir flutning
um Sameinaða Iíonungsríkið eða eftir
umhleðslu þar, skulu gilda áfram.
5. Ákvæðið í þessari grein »fiskur, sem