Ægir - 01.07.1933, Síða 21
ÆGIR
187
nú má svo heita, að hvorugt sé við-
haft.
27. júlí 1983. ■
Sveinbj. Egilson.
Frú Elín Stephensen,
ekkja Magnúsar landshöfðingja Stephen-
sen, andaðist í Reykjavík hinn 15. júli,
76 ára gömul, merk og mæt kona.
Jarðarförin fór fram 24. s. m.
Hús Fiskifélags íslands.
Hinn 26. maí þ. á. var byrjað að steypa
grunn húss þess, sem Fiskifélag íslands
lætur nú reisa og laugardaginn 22. júlí
var steypu lokið, þar með talin skiirúm,
stigar o. fl.
Húsið stendur við norðurenda Ingólfs-
strætis, þar sem það mætir Skúlagötu.
Byggingameistari Kornelíus Sigmunds-
son stendur fyrir verkinu.
Vitar og sjómerki.
Auglýsing fyrir sjómenn 1933. Nr. 3.
8. Gamla vitahúsið á Fiskakletti í
Hafnarfiröi verður rifið í þessum
mánuði. Verður þá dagmiðið f}TÍr inn-
siglingu á fjörðinn: »Járngrind með spjaldi
á Fiskakletti í innsiglingarvitann«.
Merkið á Fiskakletti er járngrind
með 7 m háu, 3 m breiðu spjaldi, hvit-
og rauðmáluðu með lárétlum röndum.
Yfir miðju spjaldinu er rauður tígull 8/4
na á hæð. (Sbr. Leiðsögubók 1932, bls.
36, 1. 23-28).
9. Bæjarstjórinn í Vestraanna-
eyjnm tilkynnir, að flakið af færeyisku
skútunni, sem sökk á leiðinni inn í höfn-
ina þar í aprílrnánuði, hafi nú verið
numið burt að fullu, og er því siglingin
inn á höfnina aftur talin örugg. Sbr.
auglýsingu 1933, nr.. 2, 4.
Reykjavík, 23. júní 1933.
Vitamálastjórinn.
Th. Krabbe.
Erlendur Árnason snikkari,
andaðist að heimili sínu Skólastræti 5,
hinn 30. júlí. Hann var hinn mesti sæmd-
armaður og vel látinn af öllum er kynnt-
ust honum.
Hallgrímshátíðin
að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
var haldin sunnudaginn 30. júlí. Um 2
þúsund manns munu hafa farið úr Reykja-
vík til Saurbæjar, flest sjóleiðina, en
margír tóku sér far í bílum. Hve marg-
ir voru samankomnir við bátíðahaldið er
óvíst, en gizkað er á, að ekki færri en
3 þúsund manns hafi þar verið. Hátíðin
hófst með guðsþjónustu í Saurbæjarkirkju
kl. 11 árdegis og að henni lokinni lagði
prestur staðarins, síra Sigurjón Guðjóns-
son, blómsveig á leiði Hallgríms Péturs-
sonar og flulti þar stutta minningarræðu.
Eflir það dreifðu menn sér upp um hlíð-
ar og út um haga. Síðan byrjuðu ræð-
ur og síðast frjálsar skemmtanir. Veður
var hið blíðasta allan daginn.