Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1933, Síða 4

Ægir - 01.09.1933, Síða 4
210 ÆGIR félagsins til aðstoðar í húsbyggingarmál- inu, greiddu fyrir því á alla lundogfor- seti Kr. Bergsson vann ótrauður, ásamt meðstjórnendum, að því að leiða þetta mál á farsæla braut. Útboð til húsasmiða voru send út og þau opnuð hinn 5. apríl og hlaut Korn- elíus húsameistari Sigmundsson verkið; var hans tilboð lægst. 7. apríl hófst vinna við grunninn. Hinn 26. maí var sprengingu klappar þeirrar, er fjarlægja þurfti lokið svo, að byrjað var að steypa grunninn. Hinn 22. júlí var húsið fullsteypt og hinn 26. ágúst var svonefnt reisugildi haldið í húsinu sjálfu og öllum þeim boðið, sem að verkinu höfðu staðið. Og að lokum komum við að þriðju- deginum 12. september er ráðherra Magn- ús Guðmundsson leggur hornstein hins nýja húss að mörgum viðstöddum, kl. 3l/2 e. h. Á pergament hafði eftirfarandi verið skrautritað og komið fyrir i loftþéttu blý- hylki, sem lagt var bak við hornsteininn. Afrit af því las ráðherra upp. Ritað á hornsleinsskjalið: »Fiskifélag íslands, sem er stofnað 20. febrúar 1911, til þess að efla fiskiveið- ar og farmennsku íslendinga, lét reisa hús þetta. Hornstein þess lagði Magnús Guð- mundsson ráðherra. Konungur íslands og drottning voru þá: Christian X. og Alexandrine. Ráðherrar: Ásgeir Ásgeirsson, Magnús Guðmundsson og Þorsteinn Briem. Stjórn Fiskifélags íslands: Kristján Bergsson forseti, meðstjórnendur: Bjarni Sæmundsson og Geir Sigurðsson. Guðjón Samúelsson húsameistari gerði uppdrætti hússins. Ríkisstjórnin gaf félaginu, með sam- þykki Alþingis, lóðina undir húsið. Kornelíus Sigmundsson húsameistari byggði það. Reykjavík 12. dag septembermánaðar 1933. (sign.) Kristján Bergsson. (sign.) Bjarni Sœmundsson. (sign.) Geir Sigurðsson. Ráðherra Magnús Guðmundsson tók til máls og byrjaði á að rekja sögu og tildrög til húsbyggingarinnar og er hér aðalefni úr ræðu hans. Á Fiskiþinginu 1919 var samþykkt að leggja árlega 1000 krónur i sérstakan húsbyggingarsjóð. Þessi sjóður var orð- inn um 20 þús. krónur á seinasta ári með vöxtum og gjöfum, sem bonum höfðu borist frá ýmsum, svo sem Hann- esi Hafliðasyni fyrsta forseta félagsins, Geir Sigurðssyni skipstjóra og Magnúsi Sigurðssyni bankastjóra. Menn sáu fljótt, að það mundi eiga langt í land að félagið gæti byggt hús, ef ekki fengist meira fé en þetta. Á Fiski- þinginu 1930 var þvi ákveðið að skipa tvo menn til þess að vera í ráðum með félagsstjórn um húsbyggingarmálið. — Völdust til þess bankastjórarnir Magnús Sigurðsson og Jón ólafsson. — Á seinasta Fiskiþingi var svo ákveðið, að verja mætti úr félagssjóði 70 þús. kr. (eða allt að 100 þús. kr.) til þess að kaupa hús eða byggja. Voru þá kosnir ráðunautar félagsstjórnar Th. Krabbe vitamálastjóri og Bened. Sveinsson fyrv. alþm. Var fyrst reynt að fá hús keypt, en ekkert hentugt fékkst. Var því ákveð- ið að byggja nýtt hús og fara fram á það við ríkisstjórn og Alþingi, að félagið fengi ókeypis lóð undir það þar sem Höfn var. Ríkisstjórnin lagði til við Al- þingi, að það yrði við þessari beiðni og samþykti Alþingi það. Ráðherrann þakkaðí öllum þeim, sero

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.