Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1933, Síða 25

Ægir - 01.09.1933, Síða 25
ÆGIR 231 Það er dýrt að seta met. Vanalegur hraði skipsins eru 25 sjómílur og brenn- um við 700 tonnum af olíu á sólarhring með þeim hraða, en ef við eigum að bæta 2 sjómílum við, þá brennum við 900 tonnum. Vanalega er gufuþrýsting- urinn 150 pund á ferþumlung, en þegar met hafa verið sett hefur gufuþrýstingur verið 190 pund. Mr. Barton kvaðst aldrei gleyma þvi, hversu allt varð auðveldara og hreinlegra eftir farið var að kynda með olíu og hin »svarta fylking« (Black Brigade) hvarf úr vélarúmum. Meðan kolum var brennt annaðist einn kynd- ari þrjú eldstæði og það var þrælavinna og þegar þess er gætt, að 1000 tonnum af kolum var mokað og brennt á sólar- hring auk þess sem ösku þurfti að fjar- lægja, þá hljóta allir að skilja að vinna við katlana var ógurleg. Á leiðinni frá Plymouth til Cherbourg, áður en kapp- sigling við »Bremen« byrjaði, skreið »Mauretania« 281/* sjómílur á klukkust. og það er meiri hraði en »Bremen« hef- ur nokkurntíma farið eða mun fara. Síð- an farið var að brenna olíu, þarfað eins einn mann til að gæta 12 eldstæða, en þau eru alls 192, en meðan kolum var brennt, var vélaliðið 392 menn og með- al þeirra voru margir ofstopamenn og oft bardagar í ketilrúmi. Þar vinna nú friðsamari menn og liprari, en þeir myndu ekki þola þá vinnu, sem hér átti sér stað, meðan kolin voru eldsneytið. Vélstjórarnir töluðu síðan fram og aft- ur um ýmsa viðburði á hafinu, svo sem hjörgun og aðstoð, sem »Mauretania« hafði verið viðriðin o. m. fl. Þeim kom vel saman um, hve almenningur væri ókunnur öllu þvi, sem fram fer í véla- rúmum skipa og af því stafaði það, að þeir sem ynnu á þilfari fengju allan heið- ur fyrir sett met, bjarganir úr sjávar- háska og þess háttar, þótt vélaliðið ætti bezlan þátt í að slíkt mætti takast og kvöddust að lokum með þeirri ósk og sannfæringu, að gamla »Mauretania« ætti enn eftir að seta met og halda áfram að eiga »bláa bandið«, sem hún hefur svo lengi gælt með sóma. (Lauslega þýtt.) Nafnabreytingar á skipum. Hinar tíðu breytingar á nöfnum skipa og mótorbáta, sem hér stunda veiðar, fara að horfa til vandræða og kemur sér illa á margvíslegan hátt. Þar sem skip ganga kaupum og söl- um eins og hér hefur orðið raun á, er vart að furða þólt nýir eigendur vilji breyta um nafn, einkum skyldi sú trú sem áður var, vera rikjandi enn þá, að heppni fylgdi breytingu á skipsnafni, en þegar skip heita tveim mismunandi nöfn- um sama árið og nýtt nafn kemur næsta ár, skömmu eftir að sjómannalmanakið með islenzka skipalistanum er komið út, þá fer að vandast málið. Með þessum tíðu nafnabreytingum verður skipalistinn aldrei nákvæmur og sum skip er þar ekki auðið að finna. Væri nafnabreyting- um hagað þannig, að skipaskoðunar- stjóra væri tilkynnt nógu snemma, með- an á samning skipalistans stendur, að frá næsta nýári yrði nafn skips, það sem eigandi tiltæki, og yrði hið sama árið út, rneðan skipalisti fyrir það ár er í gildi, þá væri mikið unnið, en þessar si- feldu nafnabreytingar jafnvel á miðju ári, ættu að leggjast niður sem fyrst.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.