Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1936, Blaðsíða 13

Ægir - 01.04.1936, Blaðsíða 13
Æ G I R 91 evjiim við Flóridaskagann og er ékki ó- fróðlegt að lesa um hákarlaveiðar suð- ur þar og iðnaðinn, sem starfræktur er í sambandi við þessar stöðvar. Maður að nafni Hamilton Wright skrifar ítar- lega um þetta í tímaritið »Popular Me- chanics«,sem gefið er út í Chicago. Minn- ist hann fyrst af öllu á það, að ef ein- hver hefði spáð því fyrir nokkrum ár- um, að í hafinu væri óþrotlegar upp- sprettur efnis til leðurvinnslu, þá myndu nienn hafa kallað slíkan spámann draum- óramann. En samt sem áður sé nú svo komið, að daglega komi á markaðinn miklar birgðir af ágætisleðri, unnið úr hákarlaskrápum. Leður úr hákárlaskráp- um er haldbetra en leður unuið úr húð- nm. Þegar allri meðferð og sútun er lokið, er það mjúkt, áferðarfagurt og haldgott. Aðrar leðurtegundir eru ekki taldar hentugri til skófatnaðargerðar. Pað er einnig mikið notað í hök og sel- nr á stóla og legubekki og er talíð næst- nm óslítanlegt. Leður, sem unnið er úr skráp liins svo kallaða leopard-hákarls er mjög skrautlegt og er einkum notað á skrautlega stóla og' legubekki. Hinn svonefndi »sawfish« (hroddskata) er einn- ig veiddur í þessu skyni. Leðurvinnsla nr hákarlaskrápum er nú svo vel á veg komin og er rekin í svo stórum stíl, að nienn ætla, að hér sé um iðnað að ræða, er hafi alheimslega þýðingu. Hákarla- veiðin er tiltölulega auðveld, eins og henni er nú liagað. Hákarlaveiðistöðv- arnar á Floridaeyjunum, BigPine, Big Ivev og Key West eru starfræktar í stórum stil. Veiðin sem daglega lierst á land þar, neniurmilljónum punda. Hákarlinn er veiddur í »gill«-net (tálkn-net, svo kölluð eftir löguninni). Net þessi eru nokkur hundruð metrar á lengd og 20 ieta d júp éða svo. Eru þau þannig gerð, að þau lykjast saman, er hákarlaþvaga lendir í þeim og fyllirþau. Eru þámikl- ar hamfarir í hákörlunum, eins og gela má nærri, og hendast þeir langar leiðir með netin og láta að lokum líf silt í ærslunum og þrengslunum. Netjunum er lagt að kveldi og neniur einnar næt- ur veiði við Big Key, hundruðum há- karla, þegar vel veiðist. Broddsköturnar eru líka veiddar í net, en þær eru venju- lega lifandi, þegar »vitjað er um«. Eru þær dregnar á þilför hákarlaskipanna og lamdar kylfum til hana. Skötur þess- ar eru 000—1900 ensk pund á þyngd og 13—20 feta (enskra) langar, þegar brodd- urinn befir verið sagaður eða höggvinn af. Þe gar veiðimennirnir lenda, liengja þeir l'yrst af öllu nel sín til þerris, enda þurfa þau stöðugra aðgerða. Þegar afferming hákarlaskipanna liefir farið fram, er skrápurinn fleginn af og hreinsaður, saltaður og breiddur til þerr- is um sólarhringsskeið. Um frekari að- gerð er svo ekki að ræða fyr en í sút- unar ver ksmiðj u n u m. Á stöðvum þessum er allt notað af skepnunni, sem notað verður. Kjötið er notað til eldis, lýsi unnið úr lifrinni, hausarnir soðnir lil límvinnslu og úr kirtlunum (the pancreatic glands) er unnið insalin, lil lækninga. Loks eru beinin varðveitt og seld til smíða ýmis- konar gripa. Ægir nr. 5, 1928. Talið er, að það sem notað er af há- karlategundum við Ameríku, eigi eiunig við þær tegundir, sem við ísland ern, en þó mun það ekki rannsakað. Bs. »Ver« R. E. 33 var seldur togarafélagi Neskaupstaðar, hinn 18. april og nafni breytt. Skipið heit- ir nú »Brimir« N. K. 75.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.