Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1939, Qupperneq 7

Ægir - 01.04.1939, Qupperneq 7
Æ G I R 89 Veiðarfærin, útvegsmennirnir og S. í. F. Aflabreslur og markaðsþrengingar und- anfarinna ára liafa greitt fiskimannastétt- inni og útgerðarmönnunum mörg þung liögg. Þessum tveim stéttum liefir ekki aðeins sviðið undan höggunmn, heldur allri þjóðinni. Um alllangt skeið hefir það verið öllum ljóst, sem augu hafa og vilja sjá, að útvegurinn getur eklci þolað af- leiðingar þeirra áfalla, sem á lionuin liafa dunið og dynja, nema því aðeins, að hon- um sé veitt ríkuleg hjálp. Útvegsmenn hafa þráfaldlega leitað til þings og stjórn- ar um aðstoð, en aldrei fengið það, sem þeir vildu fá og þurftu að fá. Loksins á elleftu stundu var hrugðið við, þegar sýnt þótti að ólijákvæmilegt hrun væri fyrir dyrum, ef áfram yrði látið reka andvara- laust fyrir straumi fálms og úrræðaleys- is. Sú aðstoð, sem útveginum hefir nú verið veitt, með því að lækka krónuna, kemur honum vitanlega að nokkrum not- um. Hitt er vitanlega alveg óráðin gáta, hvort álirif gengislækkunarinnar geti ork- að þvi að losa útveginn úr þeirri hónda- heygju, sem hann er í. Meðal útvegsmanna uiun sú skoðun ríkjandi, að krónulækk- Unin sé viðurkenning þings og stjórnar á því, að óumflýjanlegt sé að reisa við út- veginn og í kjölfar hennar muni koma víðtækar ráðstafanir, sem miði að því, að það geti orðið sem skjótast. Þrengingar allra tíma hafa fært mönn- um mikilsverðan l)oðskap, sem oftast hef- ir átt veigamikinn þátt í því að losa þá úr örmum erfiðleikanna. Meðal Islendinga hafa örðugleikar síðustu ára skapað jarð- veg fyrir þennan hoðskap, sem er i þvi fólginn, að menn vinni saman, rétti hvor óðrum hjálparhönd og létti hvors annars hagga. Piskimannastéttin og útgerðarmennirn- ir hafa veitt þessum hoðskap áheyrn og eru þegar ijyrjaðir að vinna í anda hans. Fisksölusamlagið vottar um hugarfar lit- vegsmanna í þvi að sameinast um sölu á afurðum sínum. Olíusamlögin í Vest- mannaeyjum og Keflavik eru táknandi dæmi um þá nauðsyn, að útvegsmenn kaupi vörur til útgerðarinnar i samein- ingu. Félag útvegsmanna í Vestmanna- eyjum hefir markað þá stefnu, sem út- vegsmönnum um land allt yrði til virð- ingar og gagns að taka upp. Auk olíusam- lagsins í Eyjum liefir verið stofnað þar netagerð og lýsissamlag. Flestir vita að Eyjaskeggjar hafa liaft mikið gagn af þeirri samvinnu, er þeir hafa haft um framkvæmd þessara mála. Þegar um það er að ræða að vinna að því, að koma útveginum á fjárhags- lega traustan grundvöll, er það veigamikið alriði, að hann geti fengið svo góðar og ódýrar vörur sem auðið er. Og nú orðið hlandast útvegsmönnum ekki hugur um, að þeir verði að sameinast um kaup á út- gerðarvörum til þess að það megi takast, alveg eins og þeir hafa sameinast um sölu á afurðum sínum. Megnið af ísl. vélbátaflotanum stundar þorskveiðar með línu. Það er því óhemju mikið, sem notað er af línu hér allt árið um kring og óhætt er að fullvrða, að hún er dýrust þeirra veiðarfæra, sem veitt er á liér við land. Fyrir nokkrum árum var stofnuð liér veiðarfæragerð, og hefir hún spunnið nær einfarið alla þá línu, sem notuð hefir verið hér síðan hún tók til starfa. Eftir því sem fiskimönnunum seg- ist frá, mun lína Yeiðarfæragerðarinnar yfirleitt hafa reynzt allvel. En söluverð hennar hefir verið nokkuð hærra, en hægt hefir verið að fá samskonar erlenda linu

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.