Ægir - 01.04.1939, Blaðsíða 16
98
Æ G I R
Erlendar fréttir.
Uretar veita síldveiðimönnum lán og styrk.
Brezkir sildvei'ðiinenn kvarta mjög undan
þvi, að þeir séu liart leiknir að ýmsu leyti. F.ru
þeir stöðugt að leita til rikisins með fjárliags-
lega aðstoð. Nú nýverið hefir þeim orðið all-
verulega ágengt, því að brezka stjórnin hefir
ákveðið að veita 250 þús. sterlingspund ((i.750
]uis. ísi. kr.) sem lán og styrk til þeirra síld-
veiðimanna, er vilja láta siniða sér 55—75 feta
langa vélbáta. Vélarnar eiga að vera brezkar.
Engir umsækjendur koma til greina, nema
þeir, sem geta lagt fram Vi o hluta af and-
virðinu. Lán til þessara báta iná vera mest
”<i af andvirðinu. Styrkurinn er óafturkræf-
ur, en lánin eiga að borgast upp á 20 árum
og eru rentur af þeim 3 % %.
Fljótandi síldarverksmiðja við Island.
Undanfarin ár hefir verið mikið um það
rætt meðal norskra útvegsmanna, er gera út
á sildveiðar við ísland, á hvern hátt væri hægt
að hagnýta þá síld, sem norsku skipin geta
ekki saltað eða selt í bræðslu á íslandi. Sið-
astliðið ár voru uppi kröfur uni að kaupa fljót-
andi síldarverksmiðju, er starfaði við ísland
yfir sildveiðitimann. Af þessu varð þó ekki í
það skiptið, en i stað þess voru send hingað
tvö flutningaskip, er tóku við bræðslusíld af
Norðmönnum og fluttu til Noregs.
í vetur liefir starfað nefnd, sem skipuð var
til þess að atliuga á livern liátt væri lieppi-
legast að ráða fram úr þessu máli. Nefndin
hefir nú skilað tillögum, og leggur lnin þar til
að keypt verði skip, sem sett verði í bræðslu-
vélar, er geti unnið úr 2—300 þús. hl. af sild
yfir vertiðina. Jafnframt leggur nefndin til, að
ríkið greiði verksmiðjunni það tap, sem hún
kann að verða fyrir af völdum þess, að síld-
veiðin bregðist.
Búist er við, að mál þetta verði leyst á svip-
aðan hátt og nefndin leggur til og til fram-
kvæmda koini nú á næstu vertíð.
Stærsta fisksala Norðmanna til Pórtugal.
Laust fyrir síðustu mánaðamót gengu Norð-
menn frá samningum á sölu á 11 þús. smál. af
verkuðum fiski lil Portugal. Þeir hafa aldrei
fyrr selt þangað jafn mikið magn i einu. Sölu-
verðið telja þeir mjög viðunanlegt.
Fréttir úr verstöðvunum.
27. april.
Hólmavík.
Frá úlgerðarslöðvnnum við Steingrimsfjörð
liefir aflazt dálitið i allan vetur, en gæftir hafa
verið mjög stirðar. Síðari hluta aprílmánaðar
hefir aflazt mikið af þorski á línu i Steingríms-
firði. Arabátar og trillur frá Hólmavik liafa
stunduin tvi- og þriróið sama daginn. Hefir
verið mjög stutt að sækja, aðeins rétt út fyrir
Hólmavik.
Verstöðvarnar á Vcstfjörðum.
1 páskavikunni var mjög góður afli í Djúp-
mynninu, en lakari í Súgandafirði og á þeim
svæðum, sem Flaleyrarbátarnir lögðu. Stóru
bátarnir frá ísafirði, sem hafa jafnan verið við
Snæfellsnes, öfluðu þar mjög vel í páskavik-
unni og einnig dável næstu viku á eftir. —
Togarinn Skutull var búinn að fara 4 veiði-
ferðir 1 (5. april og afla alls um 412 föt lifrar.
Talið er, að fyrir páskana hafi komið mjög
álitleg fiskiganga í ísafjarðardjúp. Auk þeirra
báta, sem daglega róa úr landi, hafa einnig
stóru bálarnir lagt lóðir sínar í Djúpið. Við það
hefir afli minnkað þar mjög síðustu dagana.
Þann 20. apríl veiddust 200 tn. af smásild inn í
botni ísafjarðar.
A ísafirði og viðar vestra er uppi sterk lireyf-
ing uni að banna ölluin vélbátum ofan við 5 smá-
lestir að leggja lóðir sínar innan við línu, er
liugsast dregin úr innsta horni Stigaldíðar, rétt
ulan við Bolungavík og yfir í Grænuhlíð, utan
við bæinn Sléttu. — Sýslunefnd Norður-ísa-
fjarðarsýslu liefir nú mál þetla lil meðferðar,
og leggur nefnd, er kosin var i málið, það til, að
linan verði færð úr Óshólum, innan við Bol-
ungavík, og i Bjarnarnúp, og aftur úr Bjarnar-
núp i Sléttu. Er búist við að þannig löguð fisk-
veiðisamþykkt fái afgreiðslu í sýsluncfndinni.
Ekki er almennt búið að skipta hhitiun land-
róðrabáta á ísafirði, en talið er að hæstu hlutir
muni nema 700 krónum.
Verstöðvarnar undir Jökli.
Framan af mánuðinum var mjög góð veiði
bæði í Ólafsvík og á Sandi. Ólsarar telja, að
ekki hafi aflazt þar jafnvei mörg undanfarin
ár. Þegar á leið mánuðinn dróg mjög úr veið-
inni og héfir sama og ekkert aflast þar und-
anfarna daga.
Framli. á bls. 103.