Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1939, Qupperneq 21

Ægir - 01.04.1939, Qupperneq 21
Æ G I R 103 Akranes. Frh. af hls. 98. Þar hefir yfirleitt verið tregur afli allan mán- u'ðinn. Tveir bátar stunda netaveiðar þaðan, og hafa þeir aflað sæmilega. Nokkrir bátar liafa stundað þaðan handfæraveiðar á grunn- niiðum og aflað vel, einkum fyrst í mánuðin- um. Togarinn Sindri var á ufsaveiðum þar til vilui af april, en fór síðan á saltfiskveiðar. Reykjavík. Útilegubátarnir hafa al'lað heldur treglega i aprii, en linuveiðararnir mun betur, einkum tveir þeirra. Vélbátarnir „Geir goði“ og „Aðal- b.jörg“ hafa stundað veiðar með botnvörpu og aflað vel. Um páskaleytið var mikill fiskur i Hvalfirði, Kollafirði og víðar í grennd við lieykjavík. Gengu margir trillubátar lil veiða um það leyti og öfluðu sumir ágætlega. Fiskur er nú fyrir alllöngu horfinn af þessum slóðum. Undanfarið hafa trillubátarnir sótt vestur á Svið, en aflað frekar lítið. Togararnir fóru almcnnt ekki á þorskveiðar fyrr en i byrjun april og voru allir farnir (i. apríl. Hjá þeim hefir verið mjög tregur afli, livar sem leitað hefir verið. Togarinn „Hafstein" kom inn í dag og er nú hættur veiðum í hili. Vegna þess, hve togararnir hafa aflað lítið, hcfir Fiskimálanefnd, að tillilutun rílcisstjórn- arinnar, leigt togarana „Tryggva gamla“ og „Þórólf“, til þess að leita að fiskimiðum fyrir Vestfjörðum og Austurlandi. Þeir lögðu af stað í þennan leiðangur kringum 20. apríl. Þegar þetta er skrifað, liefir þeim ekki orðið neitt á- gengl i leit sinni. Mcirz: Jan.-Marz: Síld (söltuð). tn. tn. Samtals 2 499 18 585 Danmörk 1 669 3 755 Sviþjóð 430 805 Þýzkaland 400 686 Belgia • » 291 Bandaríkin . V 8 441 Pólland/Danzig . » 4 600 Önnur lönd » 7 Hrogn (söltuð). tn. ln. Samtals 2 627 2 776 Sviþjóð 2 627 2 774 Bretland 2 r Fiskifélai* Islands. Hafnarfjörður. Sömu sögu er að segja af togurunum, sem þaðan ganga og Reykjavíkurtogurunum, að þeir hafa aflað mjög lítið. Beztu veiðiferðina mun togarinn „Júpíter" hafa farið, er hann kom inn 18. apríl með 97 föl lifrar, eftir 5 sólarhringa útivist við Hraunið. Togarinn „Rán“ er hættur veiðum fyrir nokkrum döguni. Sumir linuveið- ararnir öfluðu vel framan af mánuðinum, en nú eru flestir hættir. Linuveiðarinn Málmey hefir veitt í net og aflað vel, eða 417 skippund i rúm- an mánuð. Suðurnes. Þar hefir yfirleitt aflazt lieldur lítið í apríl. l)ag og (lag hefir þó verið sæmilegur afli. Flestir bátar af Vatnsleysuströnd héldu til Reykjavíkur miðvikudaginn fyrir páska og stunduðu veiðar þaðan um vikutíma. í Kefla- vík hefir veiðst sild í lagnet annað veifið, síðan 8. apríl. í skipasmíðastöð Péturs Wigelund i Njarðvík er nú verið að smiða tvo báta. Er annar eign Samvinnuútgerðarfélags Keflavíkur, og er liann 60 smál. að stærð. Hinn báturinn er 25 smál. og er eign Svanlaugs Helgasonar frá Seyðis- firði. V estmannaey jar. Góður afli var þar í páskavikunni og fékk aflahæsti báturinn þá 90 skpd. Síðan hafa verið góðar gæftir en afli frekar litill. Nokkrir bátar, sem sótt liafa á Selvogsbanka, hafa þó aflað allvel. Verstöðvarnar austanfjalls. Þar voru ágætar gæftir í páskavikunni og afli góður, eða alls 360 skpd. í Þórlákshöfn, 350 skpd. á Stokkseyri og 100 skpd. á Eyrar- bakka. I vikunni 16.—23. apríl voru mjög stirð- ar gæftir sökum brims. Úr Þorlákshöfn var ró- ið 5 daga og öfluðust alls 250 skpd. Frá Stokks- eyri var róið 3 daga og öfluðust 290 skpd. og frá Eyrarbakka var róið 2 daga og öfluðust þar 31 skpd. Austfirðir. Bátar fóru almennt lil Hornafjarðar í febrú- ar, en siðan hefir afli verið þar afar tregur og er útlitið mjög slæmt, þegar þetta er ritað. Loðna hefir oftast verið nægileg þar, og er því ekki beituleysi um að kenna. Dálítið hefir veiðst

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.