Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.1954, Qupperneq 5

Ægir - 01.09.1954, Qupperneq 5
Æ G I R 211 urland. Hafa rannsóknir þessar miðaS að því að kanna hverjar breytingar verða frá ári til árs á þessu svæði, sem talið er hafa mikla þýðingu fyrir síldargöngur upp að landinu, ef af því mætti leiða nokkrar líkur um göngur síldarinnar upp að ströndum íslands á sumrin. S. 1. vor var þessurn at- hugunum enn haldið áfram, og birtu vís- indamennirnir tilkynningu að þeirn loknurn, þar sem gerð var nokkur grein fyrir niður- stöðum rannsóknanna. Rannsóknir þessar hafa enn ekki staðið það langan tíma, að unnt sé að byggja á þeim neina spádóma, enda telja vísindamennirnir það ekki vera í sínum verkahring að spá, a. m. k. ekki enn sem komið er. Gera þeir aðeins samanburð á ástandinu frá ári til árs og svo er það hvers og eins að meta, hverjar likur séu fyrir veiði. Rannsóknirnar í ár leiddu í ljós, að ástandið á hafsvæði því, sem hér er um að ræða, var í mörgum meginatriðum svip- að og verið hafði 1951, en einmitt það ár hafði árangur veiðanna verið þannig, að komist varð hjá stóráföllum. I fyrsta skipti á þessu ári gátum við Islendingar lagt til skip í þessar rannsóknir, sem búið var full- komnustu síldarleitartækjum, þar sem Ægir hafði verið útbúinn með Asdictæki. Áður hafði norska rannsóknarskipið G. O. Sars haft slíkt tæki til mikils gagns fyrir rann- sóknirnar. Rannsóknir Ægis gátu því ekki í öllu verið sambærilegar við íslenzku rann- sóknirnar frá fyrri árum, þar sem lítil skil- yrði höfðu þá verið til þess að finna síld á i'annsóknarferðunum. Nú kom það hins vegar í Ijós, að sildar varð vart í hafinu all- langt norður af landinu, en ekki var vitað um síldargöngur þar áður á þeim tíma. Mátti af því draga þá ályktun, að meiri von væri til þess en áður, að síldin kæmi upp að landinu, ef skilyrðin nær landi yrðu hag- stæð. Það var því ekki óeðlilegt, að nokkur hugur væri í mönnum að stefna skipum sín- um til síldveiða, og svo fór, að alls tóku þátt í veiðunum 189 skip. Var það 26 skip- um fleira en verið hafði árið áður. Það kom einnig hrátt í Ijós, að vonir manna mundu ætla að rætast um a. m. k. sæmilega veiði. Töluverð síld virtist vera í hafinu út af Norðurlandi og á stærra svæði en verið hafði undanfarin ár, og virtist svo jafnvel um tíma sem hún væri á leið upp að land- inu. Hér greip svo tíðarfarið inn i, allharka- lega eins og áður segir, og kom algerlega í veg' fyrir frekari veiði. Má telja vafalítið, að útkoman hefði orðið öll önnur, ef svo hefði ekki farið. Á aö hætta að gera út til sumarsíldveiða? Það hefur jafnan verið svo, þegar illa hefur gengið á síldveiðunum nú undanfar- inn áratug, að þeirri spurningu hefur verið varpað fram, hvort ekki ætti að hætta að gera út á síldveiðar að sumrinu, og hefur þetta orðið því tíðari spurning eftir því, sem aflabresturinn hefur orðið meiri og oftar. Þeirri spurningu er oft varpað fram hugsað eða vanliugsað, hvers vegna menn séu eig'inlega að fara á síld, þetta sé ófor- svaranleg sóun á dýrmætum fjármunum og' mætti verja því fjármagni, sem til sild- veiðanna fer, miklu hagkvæmara á annan hátt. í rauninni er ekkert við því að segja, þótt menn varpi fram slíkri spurningu og engin von til þess, að allur þorri manna geti gert sér þess noklcra grein, hver rök liggja til þess, að farið er til síldveiða þrátt fyrir margvísleg vonbrigði ár eftir ár. Ég tel því rétt, að ég noti nokkrar mínútur af þeim tíma, sem ég hef hér til umráða, til þess að ræða einmitt þessa hlið málsins og freista þess að skýra fyrir mönnum það, sem hér liggur til grundvallar. Síldveiðarnar, eins og allar aðrar fisk- veiðar, eru háðar margvíslegum náttúru- skilyrðum, sem eru mönnum óviðráðanleg. Hiti sjávarins, hafstraumar, átuskilyrði, tíðarfar, svo nokkur séu nefnd, eru allt atriði, sem hafa áhrif á það, hversu mikil fiskigengdin er á miðin og hversu miklum afla er unnt að ná með þeim tækjum, sem fyrir hendi eru. Þegar menn hefja vertíð, er ógerningur að vita um það fyrir fram, hvernig aflabrögð muni verða, enda þótt oft megi leiða að því nolckrar líkur. Einmitt

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.