Ægir - 15.03.1957, Qupperneq 6
56
ÆGIR
VESTFIRÐINGAFJÓRÐUNGUR
í febrúar
Góðfiski má teljast hafa verið í febrú-
ar á Vestfjörðum, og ágætur afli hjá
nokkrum bátum; — mundi hafa orðið
uppgripaafli, ef tíðarfar hefði verið
skárra. Undantekning hér frá er Stein-
grímsfjöi’ður.
Þar, sem ekki er annars getið, er um
slægðan fisk með haus að ræða.
Patreksfjörður. Góður afli jafnan. Vb.
Andri fékk 141 lest í 22 sjóferðum, Sæ-
borg fékk 134 lestir í 21 sjóferð, Sigur-
fari fékk 82 lestir í 17 sjóferðum. Athuga
ber, að hér er um óslægðan fisk að ræða.
Togarinn Ólafur Jóhannesson var að
veiðum; fékk aðeins 221 lest í tveimur
veiðiferðum. Gylfi var í viðgerð ytra.
Tálknafjörður. Góður afli, er sækja
varð á dýpri mið, en lélegur, er sótt var
suður á Breiðafjörð. Vb. Tálknfirðingur
fékk 110 lestir í 21 sjóferð, Freyja fékk
86 lestir í 19 sjóferðum.
Bíláudalur. Báðir nýkeyptu bátarnir
voru að veiðum og öfluðu vel, en annar
þeirra var lengi frá veiðum vegna vél-
bilunar. Vörður aflaði 98 lestir í 17 sjó-
ferðum, en Sigurður Stefánsson (áður
Gotta) fékk 50 lestir í 10 sjóferðum.
Rækjubátarnir hafa aflað mjög vel í vet-
ur. Afli þeirra yfir janúar og febrúar var
þessi: Jörundur 13.810 kg., Hinrik 12.215
kg„ Kári 8.940 kg.
Þingeyr '. Góður afli en sjaldgjöfult. Vb.
Þorbjörn fékk 80 les.tir í 11 sjóferðum,
Gullfaxi 65 lestir í 9 sjóferðum.
Flateyri. Rýr afli í mánuðinum. Guð-
mundur Júní fékk einungis 170 lestir í
tveimur veiðiferðum. Gyllir var í slipp
syðra, fór á veiðar um 20. febr. og land-
aði í heimahöfn um 60 lestum.
Suðureyri. Góður afli, er komizt varð
á dýpri mið, en sjaldgjöfult. Mest aflað-
ist í sjóferð um 11 lestir. Aflahæst í
mánuðinum var Freyja (nýja) með rúmar
100 lestir í 15 sjóferðum og næstur Frið-
bert Guðmundsson með 94 lestir í 14 sjó-
ferðum. Fimm bátar gengu þaðan í mán-
uðinum.
Bolungarvík. Þar var góður afli, enda
mikið só.ttur sjór. Afli bátanna varð
þessi: Vb. Einar Hálfdans 113.500 kg. í
19 sjóferðum, Flosi 103.000 kg. í 19 sjó-
ferðum, Hugrún 97.700 kg. í 18 sjóferð-
um, Víkingur 91.800 kg. í 18 sjóferðum.
Þrír bátar um 5 lestir voru líka á veiðum.
Aflahæsti báturinn, Kristján, fékk 10.200
kg. í 8 sjóferðum. Einn bátur, 15 lesta,
tók upp rækjuveiðar um miðjan mánuðinn
og aflaði sæmilega, er gæftir leyfðu.
Hnífsdalur. Góður afli einkum á vb.
Pál Pálsson (nýja). Hann fékk 107 lest-
ir í 18 sjóferðum. Mímir aflaði 89 lestir
í 17 sjóferðum.
ísafjörður. Vélbátaaflinn þar má tel.j-
ast hafa verið mjög góður en nokkuð mis-
jafn, og ágætur hjá tveimur bátanna.
Lang-aflahæst að vanda var vb. Guðbjörg
með 141.900 kg. í 21 sjóferð. Guðbjörg
(skipstj. á henni er Ásgeir Guðbjartsson)
mun vera á meðal aflahæstu vélbáta
landsins það sem af er vetrarvertíðinni.
Afli bátsins í janúar nam 123 lestum.
Næst að afla var Gunnvör með 118 lestir
í 20 sjóferðum, þá Ásbjörn með 90 lestir
í 19 sjóferðum, Már með 77 lestir í 16
sjóferðum og Auðbjörn með einungis
um 34 lestir í 8 sjóferðum og loks Vík-
ingur (13 lesta) með 34 lestir í 14 sjó-
ferðum. Togararnir öfluðu fremur lít-
ið sökum stöðugra storma. Sólborg fékk
375 lestir í tveim veiðiferðum, fsborg
fékk 119 lestir í tveimur ferðum, en land-
aði 200 lestum að auki 1. marz.
Súðavík Vb. Trausti, eini báturinn, sem
stundar þarna veiðar, aflaði 74 lestir af
óslægðum fiski í 14 sjóferðum og má það
teljast rýr afli.
St&'.ngrímsfjörður. Afar rýr afli og
gæftir mjög tregar. Farnar voru einungis
3 til 3 sjóferðir og afli bátanna frá 2500
til 3500 kg. í sjóferð.