Ægir - 01.04.1958, Qupperneq 6
96
ÆGIR
Ofa/ur J3jömiion:
GrænlandsveLbar togaranna 1957
Á árinu 1957 stunduðu 36 íslenzkir
togarar veiðar við Grænland. Fóru þeir
samtals 164 veiðiferðir, þar af 5 ferðir
á þorskveiðar, 12 á saltfiskveiðar og 147
á karfaveiðar.
Samanlagður úthaldstími þeirra var
3030 dagar, þar af 92 á þorskveiðum,
767 á saltfiskveiðum og 2171 á karfa-
veiðum. Sé litið á Grænlandsveiðarnar
hjá hverjum togara sem samfellt úthald,
þ. e. ef dagar í höfn milli ferða eru taldir
með, verður heildarúthaldstíminn 3131
dagur, þar af 92 dagar á þorskveiðum,
767 á saltfiskveiðum og 2272 á karfa-
veiðum. Þetta samsvarar úthaldi 9—10
togara í eitt ár (miðað við meðalúthalds-
tíma á árinu 1956, sem var 326 dagar).
Fiskileit.
Þrjár Grænlandsferðanna voru farnar
í fiskileit, ferðir bv. Brimness 15. maí—
1. júní og 19. júní—4. júlí og ferð bv.
Egils Skallagrímssonar 5. sept.—17. sept.
Er ýtarleg frásögn um þær ferðir í grein
eftir dr. Jakob Magnússon fiskifræðing
í 17. og 22. tölublaði „Ægis“ 1957, bls.
257—260 og 327—337.
Heildaraflinn
í Grænlandsferðunum 1957 var 49.811
smál., þar af 1.343 smál. á þorskveiðum,
7.654 smál. á saltfiskveiðum og 40.814
smál. á karfaveiðum. Aflinn er miðaður
við slægðan fisk með haus, nema karfi,
sem er talinn óslægður.
Mestur afli í ferð á þorskveiðum var
328 smál., á saltfiskveiðum 907 smál. og
á karfaveiðum 404 smál. Mestur afli á
úthaldsdag var 42,3 smál. dagana 13.
júlí—21. júlí (karfaveiðar).
Aflinn sundurliðast þannig:
TAFLA I.
Heildarafli logaranna viS Grœnland 1957.
cS
13
'o
W
TfH
co
cð S
'Sfa
5© J©
Meðalafli
á úthaldsdag
o ■
o
*0 c3
> SP
W ö
co
Sf
§3
% co
kg kg kg kg
Þorskur 10.260.212 62.561 3.387 3.276
Ýsa 29.925 182 10 10
Ufsi 192.452 1.176 64 61
Langa 10.970 67 4 4
Keila 6.320 38 2 2
Steinbítur 212.720 1.297 70 68
Karfi 38.486.160 234.672 12.700 12.292
Lúöa 83.455 509 28 27
Ósundurl. 528.685 3.223 174 169
Samtals 49.810.899 303.725 16.439 15.909
ÞorskveiSarnar.
Á þorskveiðar voru farnar 4 ferðir um
vorið og ein um haustið. Samanlagt út-
hald í þessum 5 ferðum var 92 dagar.
Þá var lagt upp í eina ferð á þorskveið-
ar við Grænland í desember, en aflanum
var ekki landað fyrr en í janúar 1958, og
telst sú ferð því ekki með á yfirliti fyrir
árið 1957.
Árangur þorskveiðanna var sem hér
segir: