Ægir - 01.04.1958, Blaðsíða 13
ÆGIR
103
Ástæður til þessa samdráttar virðist
að mestu mega finna í minni „menhaden“
afla.
Bandaríkin hafa oftast verið önnur
stærsta fiskveiðiþjóð heimsins næst á
eftir Japönum.
IKrellandl.
Stórt frystihús reist í Grimsby.
í byrjun þessa árs mun verða byrjað
að reisa í Grimsby eitt stærsta frystihús
fyrir matvæli, sem reist hefur verið í
heiminum, segir í „Fish Trades Gazette"
skömmu fyrir áramótin. Húsið er reist
fyrir nýstofnað fyrirtæki, Eskimo Foods
Ltd., sem stofnað var í haust við sam-
steypu tveggja félaga, Grimsby Frozen
kToducts Ltd. og Frigidfruits Ltd.
Húsinu hefur verið ætlaður staður
nærri fiskihöfninni á 2700 fermetra lóð.
Nákvæm kostnaðaráætlun hefur ekki enn
verið gerð, en ætlunin er. að húsið verði
fullgert í september 1959. Aðstoðarfor-
stjóri Eskimo Foods Ltd. sagði í viðtali
við fréttamann frá „Fish Trade Gaz-
ette“: „Ef dæma skal eftir þeim frysti-
húsum, sem ég hef séð bæði hérlendis og
ei'lendis, þá held ég að þetta hús okkar
uauni verða hið stærsta sinnar tegundar
1 heiminum".
1'i'ií Sovéíríhjuntun.
Fiskaflinn 1957.
Aflaskýrslur sýna, að heildaraflinn á
fyrra helmingi s. 1. árs hefur orðið um
1-300 þús. lestir, en þar er um 8% minni
afli en á sama tímabili árið áður.
Sovétríkin eiga nú mjög stóran fiski-
skipaflota, sem er samkvæmt opinberum
skýrslum 60.443 bátar og skip, þar af
12.387 vélbátar og skip.
Ársafli togaraflotans hefur að jafnaði
verið um 600 þús. lestir (afli verk-
smiðjutogaranna meðtalinn). — Síðan
1946 hafa Rússar í vaxandi mæli stund-
að síldveiðar á Norður-Atlantshafinu. —
Nú taka þátt í þeim veiðum um 500 sk’ip,
°S er ársafli þeirra um 300 þús. lestir.
(" MARKAÐSIVfÁL
Útfluiningur lýsis minnkandi.
„Commercial Fisheries Review“ birta í
janúarhefti 1958 grein um milliríkjavið-
skipti á lýsi. Samkvæmt henni hefur
dregið úr útflutningi lýsis hjá fram-
leiðsluþjóðum, enda þótt framleiðsla árs-
ins hafi verið meiri en nokkru sinni fyrr
Heildarútflutningur lýsis í þús. lesta:
Ár Hval- Búrhvalslýsi Annað Alls
lýsi lýsi
1957 (éætlað) 435 90 200 725
1956 425 125 210 760
1955 420 100 205 725
1954 455 75 215 745
1953 420 55 195 670
1952 460 85 134 679
1951 435 120 155 710
1950 425 55 55 535
Metialtal 1945-49 280 40 85 405
Meöaltal 1935-39 545 30 135 710
Undir liðnum annað lýsi er að finna
m. a. síldarlýsi, þorskalýsi o. fl. þ. h.
Helztu útflutningslönd eru (magnið tal-
ið í þús. lesta):
Mcðaltal
1956 1955 1954 1945-’49 1935-’39
Norður-Ameríka
Kanada 9.3 9.3 7.9 7.7 12.0
Bandaríkin 70.4 71.3 70.8 8.3 1.2
Evrópa
Danmörk 9.7 14.2 11.0 0.6 2.5
V.-Þýzkal. 9.3 16.5 7.7
Island 21.3 16.3 20.6 27.1 24.5
Holland 9.1 5.4 10.4 0.6 0.2
Noregur 42.2 20.9 26.6 23.5 28.0
Portúgal 4.7 5.5 6.0 1.7
Bretland 3.8 4.4 3.5 3.8 6.0
Önnur lönd
Angola 5.7 6.3 12.6 1.4 0.7
Japan 5.0 10.2 10.4 0.7 35.0
SuÖur-Afríka 5.4 13.3 10.5 1.7 2.2