Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1958, Page 12

Ægir - 01.04.1958, Page 12
102 ÆGIR afli hennar minnkað ár frá ári og var nú helmingi minni en 1954. Um 80% fór til vinnslu í verksmiðjum, hitt til niðursuðu, en nægði ekki, því að niður- suðuverksmiðjurnar fluttu inn smásíld frá Þýzkalandi, sem veiddist kringum Helgoland. Makrílveiðin nam 20.000 lestum, að verðmæti 10 millj. kr. og er það metafli. Um helmingur aflans mun hafa farið í verksmiðj ur. Sandsílisaflinn hefur undanfarin ár haft mikla þýðingu fyrir verksmiðjurnar. Hann var nú um 75.000 lestir, sem er nokkru minna en árið áður. Laxveiðin nam um 1000 lestum, að verðmæti 9 millj. kr., sem er 2 millj. kr. minna en 1956. Aflinn var svipaður, en verðið óhagstætt fyrri helming ársins. Af ál veiddust um 3500 lestir, að verðmæti 18,5 millj. kr. Um miðjan desember höfðu verið flutt- ar út sjávarafurðir fyrir 295 millj. kr., og er þá fiskmjöl og lýsi meðtalið. Nið- ursoðnar fiskafurðir voru fluttar út fyr- ir 21,5 millj. kr., sem er 1,5 millj. kr. minna en 1956. Af fiskflökum voru flutt- ar út 15.000 lestir, að verðmæti 44 millj. kr., sem er 5 millj. kr. meira en 1956. Um helmingur fiskflakanna var flatfisk- ur hinn helmingurinn þorskur. Ferskur og frystur fiskur var fluttur út fyrir 195 millj. kr. og saltfiskur, verkaður og óverkaður, fyrir um 15 millj. kr. — að mestu leyti færeyskur og grænlenzkur fiskur. Um fiskneyzluna innanlands liggja ekki fyrir tölur, en talið er líklegt, að hún hafi verið svipuð og 1956. Þá var hún 12 kg. á mann. Frá Kanada. Kœnadískar sjávarafurðir í Briissel. Kanada tekur þátt í heimssýningu í Briissel, sem opnuð verður á næstunni og hefur stórt svæði til umráða; hefur m. a. verið reistur stór sýningarskáli í nýtízku stíl, þar sem eingöngu verða sýndar kan- adískar vörur og ýmislegt varðandi lifn- aðarhætti og menningu Kanadabúa. Meðal þeirra afurða, sem til sýnis verða, eru ýmsar fiskafurðir. (Trade News). Frá BSunilurílijunum. Fiskur og kvenfólk. Eftirfarandi er þýtt lauslega úr tíma- ritinu „Quick Frozen Foods“. ,,Af öllum greinum þess iðnaðar sem risið hefur upp í sambandi við hraðfryst- ingu matvæla, er mest hægt að segja um frystar sjávarafurðir hvað hollustu við- kemur; — hátt vítamín innihald, tiltölu- lega fáar hitaeiningar og þar af leiðandi minni hætta á að þyngjast um of. Dr. Normann Jolliffe á heilsufarsstofnun New York borgar, segir að feiti, sem líkami mannsins fái við neyzlu sjávar- afurða dragi úr kolesterol innihaldi blóðsins, þar sem á hinn bóginn dýra- feiti auki það (kolesterol hefur tilhneig- ingu til að setjast innan á æðaveggina og tefja blóðrásina). Segja má því, að fiskneyzlan dragi úr hjartasjúkdómum.. Þessar og fleiri stað- reyndir þarf að koma kvenfólkinu í skilning um og bendir greinarhöfundur á, að ódýrasta leiðin verði að setja miða með öllum þessum upplýsingum inn í hvern fiskpakka. Fleiri og fleiri læknar ráðleggja fólki að borða fisk — ekki einu sinni, heldur þrisvar ítil fjórum sinnum í viku hverri. Ef rétt er á hlutunum haldið má tvöfalda fiskneyzluna á næstu fimm árum (átt er við Bandaríkin)“. Fiskaflinn 1957. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma, virðist fiskafli Bandaríkjamanna á s. 1. ári ætla að verða töluvert undir metafla ársins 1956. Þannig sýna skýrslur fyrra heimings s. 1. árs, að aflinn hefur orðið um 180 þús. lestum minni en á sama tíma árið áður, og venjulega eru afla- brögð síðari hluta ársins lakari.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.