Ægir - 15.01.1963, Blaðsíða 16
10
Æ GIR
enn fallandi, einkum síðari hluta sumars.
1 miðjum október var verðið £ 29-0-0 per
tonn cif, en fór úr því aftur hækkandi og
var um £ 37-0-0 í árslok.
Meðalverð síldarverksmiðjanna á síld-
arlýsi mun vera um £ 33-10-0 cif eða um
£ 29-0-0 fob per 1016 kg.
Nær öll lýsisframleiðslan frá s.l. sumri
er nú seld.
Talsvert magn af síldarmjöli var selt
fyrirfram á 16 til 17 shillinga og 6 pence
per porteineiningu í tonni cif, en þegar
kom fram á haustið fór verðið fallandi. Síð-
ustu sölur voru á 15 shillinga og 3 pence
eða tonnið um £ 54-18-0 cif. Enn eru ó-
seld um 12.000 tonn af síldarmjöli af
framleiðslu s.l. sumars.
Verð á síldarmjöli innanlands var á-
kveðið kr. 540,oo per 100 kg. fob verk-
smiðjuhöfn. Verðið var kr. 485,oo árið
1961.
Heildar fobverðmæti bræðslusíldaraf-
urðanna frá s.l. sumri er talið nema um
540 milljónum króna, lauslega áætlað.
MarkaSshorfur.
Markaðshorfur á síldarmjöli og lýsi eru
nú mjög óvissar, vegna sívaxandi fram-
leiðslu fiskimjöls í heiminum, fyrst og
fremst í Perú og vegna aukinnar fram-
leiðslu á jurtafeiti og lýsi.
Notkun á fiskimjöli hefur sem betur
fer vaxið í réttu hlutfalli við aukna fram-
leiðslu. Framboðið á fiskimjöli er mjög
mikið eins og sést m. a. af því, að Perú
hefur þegar selt fyrirfram um 800 þús-
und tonn af þessa árs framleiðslu sinni
af anchovettumjöli.
Víðtækar tilraunir eru nú gerðar er-
lendis um framleiðslu fiskimjöls til mann-
eldis. Ef þær bera tilætlaðan árangur geta
þær haft ómetanlega þýðingu fyrir sjáv-
arútveginn hér sem annarsstaðar.
Það er ánægjulegt að minnast þess, að
fyrstu tilraunir um framleiðslu fiski-
mjöls til manneldis voru gerðar af Is-
lendingi, Guðmundi heitnum Jónssyni,
vélfræðingi árið 1935 og að þeirra til-
rauna hefur nú verið minnzt á alþjóða-
vettvangi í sambandi við þetta mál.
Nýjar síldarverksmi'öjur.
Síldarverksmiðjur ríkisins keyptu Síld-
arbræðsluna á Seyðisfirði s.l. vetui*. Voru
afköst verksmiðjunnar aukin úr ca. 1.700
málum á sólarhring upp í 5.000 mál.
Vegna óhagstæðrar veðráttu og verkfalla
tafðist endurbygging verksmiðjunnar. en
hún vann þó úr 96.929 málum síldar auk
síldarúrgangs í sumar.
Þá var reist á vegum S. R. ný síldar-
verksmiðja á Reyðarfirði með 1.500 mála
afköstum á sólarhring og hóf hún vinnslu
hinn 29. ágúst. Vilhjálmur Guðmundsson,
verkfræðingur, tæknilegur framkvæmda-
stjóri S. R., sá um þessar framkvæmdir
af þeirra hálfu.
Reist var ný verksmiðja á Fáskrúðsfirði
í stað verksmiðjunnar, sem brann þar
1961 og er hin nýja verksmiðja með um
1.500 mála afköstum.
Ný verksmiðja var reist á Bakkafirði
með 500 mála afköstum.
Gerðar voru miklar endurbætur á
verksmiðjunum á Siglufirði, Raufarhöfn,
Vopnafirði, Neskaupstað og Húsavík.
Heildar sólarhringsafköst síldarverk-
smiðjanna á Norður- og Austurlandi eru
nú talin um 70.000 mál.
Aukin starfsemi verksmiðjanna síðustu
tvö árin hefur haft í för með sér skort
á nægilega mörgum kunnáttumönnum til
ýmissa starfa í verksmiðj unum, sem erfitt
hefur reynzt að vinna bug á. Er það eitt
af mestu vandamálum verksmiðjanna að
fá bætt úr þessum skorti.
Fyrirhugaðar eru ýmsar endurbætur á
síldarverksmiðjunum fyrir næsta sumar
og veltur það fyrst og fremst á útvegun
lánsfjár og vinnuafls, hve miklar þær
verða.