Ægir - 01.04.1966, Page 6
100
ÆGIR
Sveinlaugur Helgason
fyrrum útgeröannaður
og shipstjóri
Sveinlaugur andaðist að heimili sínu á
Seyðisfirði hinn 12. desember síðastliðinn.
Hann var fæddur að Skógum í Mjóafirði 5.
febr. 1890.
Foreldrar hans voru hjónin Helgi Há-
varðsson — um árabil vitavörður á Dala-
tanga — og kona hans Ingibjörg Þor-
varðardóttir. Mestu sæmdarhjón.
Ævistarf Sveinlaugs var allt bundið
við sjávarútveginn, þykir mér því hlýða
að biðja Ægi að geyma mynd af hon-
um ásamt þessum línum.
Hann ólst að nokkru leyti upp hjá
Sveinhildi föðursystur sinni og manni
hennar Þorsteini Ólafssyni, sem þá
bjuggu í Haga í Mjóafirði.
Sveinlaugur réðst ungur til trésmíða-
náms, en sneri sér snemma að sjósókn
og útgerð, á fyrstu árum vélbátaútgerð-
arinnar í Mjóafirði. Eignaðist fljótlega
vélbát sjálfur, gerði út sjálfur eða í
félagi við aðra. Varð snemma formaður
á vélbátum, stundaði lengi sjó frá Mjóa-
firði og Seyðisfirði. Eftir að hann flutt-
ist til Seyðisfjarðar var hann um mörg
ár formaður hjá þeim Brynjólfi og Jóni
Sveinssyni, sem gerðu út einn eða fleiri
vélbáta frá Seyðisfirði á sumrum og
Hornafirði á vetrum um mörg ár.
Farnaðist Sveinlaugi vel á sjónum og
kom alltaf skipi sínu heilu í höfn. Annað
aðalstarf hans voru smíðarnar, á síðari
árum mest skipasmíðar. Vann við bygg-
ingu vélbáts eitt sumar í Danmörku, og
var svo einn af þeim sem sigldi þeim bát
heim að smíði lokinni. Skömmu síðar
byggði hann sér 27 lesta bát í Njarðvíkum,
sem hann lét heita eftir föður sínum,
„Helgi Hávarðsson“, gerði hann út í nokk-
ur ár.
Rétt eftir 1940 var stofnuð Skipasmíða-
stöð Austfjarða á Seyðisfirði. Varð Svein-
laugur fyrsti framkvæmdastjórinn og
jafnframt verkstjóri, starfaði þar í mörg
ár. Eftir að hann hætti þar vann hann að
smíðum af ýmsu tagi, svo að segja til síð-
ustu stundar. Talsvert vann hann að
félagsmálum útgerðarmanna. Reyndist þar
tillögugóður og traustur félagsmaður.
Heilsuhraustur var Sveinlaugur, en hin
síðari ár munu fæturnir hafa nokkuð ver-
ið farnir að þreytast, var það að vonum
eftir miklar stöður á sjónum, og svo við
smíðarnar í landi um langan aldur.
Á síðasta ári fór hann til uppskurðar í
Reykjavík, varð ekki annað séð en að sú
aðgerð hefði tekizt vel. En svo kom kallið.
Sveinlaugur var að eðlisfari traustur
drengskaparmaður.
Eftirlifandi kona hans er Rebekka
Kristjánsdóttir frá Sandhúsi í Mjóafirði.
Eignuðust þau þrjú börn, sem öll eru á
lífi.
Sendi ég þeim og öðrum vandamönnum
samúðarkveð j ur.
Árni Vilhjálmsson.