Ægir - 15.08.1967, Page 8
254
Æ GIR
komizt upp í 11V2 lest af slitnum humar
eftir 4 daga og hefur afli verið sæmilegur
hjá þeim seinni hluta júlímánaðar, eink-
um hjá Sædísi og Hafnarbergi.
Alcranes: Þaðan stunduðu 8 bátar veið-
ar á tímabilinu, þar af 5 með handfæri og
3 með humartroll. Aflinn varð alls 918
lestir í ca 69 sjóferðum, þar af afli humar-
báta 182 lestir í 26 sjóferðum. Gæftir
voru góðar.
Rif: Þaðan stunduðu 5 bátar veiðar, þar
af 4 með handfæri og 1 með dragnót. Afl-
inn varð alls 170 lestir, þar af 83 lestir í
44 sjóferðum í júlí hjá 4 handfærabátum.
Aflahæsti bátur í júní varð m.b. Hamar
með 30 lestir í 6 sjóferðum, en í júlí m.b.
Pálmi EA 21 með 30 lestir í 13 sjóferðum.
Gæftir voru góðar, einkum í júlí.
Ólafsvík: Þaðan stunduðu 23 bátar veið-
ar, þar af 13 með handfæri, 7 með drag-
nót, 2 með humartroll og 1 með línu í júní-
mánuði. Aflinn varð alls 1168 lestir, þar
af 685 lestir í dragnót, 220 lestir á hand-
færi, 218 lestir í humartroll og 45 lestir á
línu. Hæsti bátur í júnímánuði varð m.b.
Jón Jónsson með 47 lestir í humartroll, en
í júlí m.b. Jóhann Þorláksson með 97 lestir
í dragnót. Gæftir voru góðar.
Grundarfjöröur: Þaðan stunduðu 4 bát-
ar veiðar, þar af 2 með botnvörpu, 1 með
dragnót og 1 með handfæri. Auk þeirra
voru 8—10 trillur gerðar út á handfæra-
veiðar. Aflinn var alls ca 380—400 lestir.
Aflahæsti bátur á tímabilinu varð m.b.
Sigurfari með ca 170 lestir í dragnót.
Gæftir voru góðar.
Stylckishólmur: Þaðan voru 9 bátargerð-
ir út frá verstöðinni á þessu tímabili, þar
af 1 á síldveiðum og 8 með handfæri í júní,
en nokkrir fóru á dragnót í júlí. Einnig
voru 3 trillur gerðar út að einhverju leyti.
Aflinn varð alls 469,5 lestir í 44 sjóferð-
um. Aflahæsti bátur í júní varð m.b.
Hafnarborg með 79 lestir í 3 sjóferðum
(handfæri) og í júlí m.b. Gullþór með 63
lestir í 6 sjóferðum (handfæri). Gæftir
voru frekar lélegar í júní, en mjög góðar
í júlí.
VESTFIRÐIN GAF J ÓRÐUNGUR
í júní 1967
Sumarvertíðin hófst almennt í byrjun
júnímánaðar, og stunduðu 145 bátar róðra
í mánuðinum. Eru það heldur fleiri bátar
en á sama tíma í fyrra. Flestir bátarnir
voru eingöngu með handfæri eða 126 bát-
ar, 13 stunduðu dragnótaveiðar, 1 bátur
var með botnvörpu og 5 bátar réru með
línu.
Gæftir máttu heita góðar allan mánuð-
inn og afli var yfirleitt nokkuð góður hjá
færabátunum, en dragnótabátunum gekk
heldur erfiðlega. Voru nokkrir þeirra að
einhverju leyti á handfæraveiðum með.
Heildaraflinn í mánuðinum var nú
2.042 lestir, en var 2.476 lestir á sama
tíma í fyrra. Er það aðallega afli drag-
nótabátanna, sem hefir minnkað frá árinu
áður.
Aflinn í einstökum verstöðvum:
Patreksfjörður: Tveir Patreksfjarðar-
bátar stunduðu veiðar með línu við Græn-
land. Þorri fór tvær veiðiferðir og landaði
123 lestum, en Þrymur fór eina veiðiferð
og landaði 48 lestum. Fjórir bátar voru
byrjaðir dragnótaveiðar, en afli var treg-
ur. Voru þeir því að einhverju leyti á
handfæraveiðum. Aflahæstur þessara báta
var Skúli Hjartarson með 19.5 lestir í 13
róðrum. 12 trillur voru á handfæraveiðum,
flestar með 2 menn undir færi. Heildar-
afli Patreksfjarðarbáta í mánuðinum var
286 lestir.
T álknafjöröur: Þrír bátar stunduðu
dragnótaveiðar og tveir bátar voru byrj-
aðir á færum. Var heildarafli þeirra 1
mánuðinum 78 lestir. Aflahæstur var
Brimnes með 26,7 lestir í 6 róðrum með
dragnót.
Bíldudalur: Þaðan stunduðu 4 bátar
dragnóta- og færaveiðar, en 3 bátar voru
einhliða á færum. Var heildarafli Bíldu-
dalsbáta í mánuðinum 62 lestir. Aflahæst-
ur var Jörundur Bjarnason með 12,9 lest-
ir í dragnót.
Þingeyri: 7 bátar voru gerðir út til
handfæraveiða frá Þingeyri, og var heild-