Ægir

Árgangur

Ægir - 15.08.1967, Síða 14

Ægir - 15.08.1967, Síða 14
260 Æ GIR r Haf- og fiskirannsóknir J Síldar- og hafrannsóknir fyrrihluta árs 1967 Eftirfarandi grein er tekin saman af þeim Hjálmari Vilhjálmssyni, fiskifræSingi og Dr. Unnsteini Stef- ánssyni, haffræðingi. Ritsfj. Að þessu sinni hófust hinar árlegu haf- og síldarrannsóknir v/s Ægis í lok marz- mánaðar, og voru á tímabilinu 29. marz til 15. júní farnar tvær yfirlitsferðir um svæðið frá Jökli norður og austur fyrir land allt að 2° a.l. Á sama tíma leitaði m/s Hafþór austursvæðið allt suður undir Færeyjar og austur fyrir núll lengdar- bauginn. Að þessu þinni finnur m/s Hafþór fyrstu síldina og er þá staddur á um 65°40 og 3°30. Aðalsíldarmagnið reynd- ist þó vera nokkru austar og fannst um miðjan maímánuð allmikið magn síldar á 20—30 sjóm. breiðu belti, um núll lengdar- bauginn, sem virtist svo til samfellt milli 65. og 68. breiddargráðu. Síldin stóð yfir- leitt mjög djúpt á daginn og voru torf- urnar ekki á kastfæru dýpi nema 2—4 klst. yfir lágnættið. Þó fengu færeyskir bátar er þarna voru dágóða veiði af og til. Síldin gekk síðan norðvestur á bóginn og um miðjan júnímánuð virtist aðalsíld- armagnið vera á svæðinu suðaustur af Jan Mayen. Dagana 18. og 19. júní var haldinn á Akureyri sameiginlegur fundur rúss- neskra og íslenzkra haf- og fiskifræðinga, en Rússarnir höfðu fram að þeim tíma verið við rannsóknir í hafinu milli Noregs og íslands allt frá Færeyjum að Jan Mayen. Á þessum fundi voru tekin saman gögn er sýndu ástand sjávar, átuskilyrði og dreifingu síldar á tímabilinu maí—júní 1967. Helztu niðurstöður fundarins voru sem hér segir: 1. Hitadreifing. Útbreiðsla hafíss fyrir Norðurlandi í maímánuði og fyrri hluta júnímánaðar var með mesta móti síðan 1918, ef frá eru talin árin 1965 og e.t.v. 1949. I fyrri hluta júnímánaðar var hitastig í efstu lögum sjávar vestan Islands lítils- háttar undir meðallagi. Á landgrunnsvæðinu norðan íslands var sjávarhiti í efstu 300 metrum í maímánuði og fyrri hluta júnímánaðar frá 2—5° und- ir meðallagi og er vorið 1967 sennilega hið kaldasta í hafinu á þessum slóðum síðast- liðin 40 ár. Hinn óvenju lági sjávarhiti er talinn hafa orsakazt af óvenju mikilli útbreiðslu hafíss á svæðinu, mjög litlu inn- streymi Atlanzsjávar inn á svæðið að vest- an, lágum lofthita og þar af leiðandi síð- búinni upphitun yfirborðslaga sjávar. Á svæði Austur-Islandsstraumsins milli Islands og Jan Mayen og austan Islands var sjávarhiti frá 0.7—1.7° undir meðal- lagi. Á þessu svæði má segja að ástandið hafi verið svipað og undanfarin köld ár. I eystri álum Atlanzhafsstraumsins í Nor- egshafi var hitastig 0.5—1.5° undir meðal- lagi og lægra en síðastliðið ár. Á hinn bóg- inn var sjávarhiti miðdýpis í vestri ál þessa straums 1—2° yfir meðallagi. Með hliðsjón af því, að sjávarhiti var mjög lágur í Norðurhafi og varamagn þess langt undir meðallagi, telst vorið 1967 meðal hinna köldu vora, sem hafa verið einkennandi undanfarin ár. 2. Átumagn. Á landgrunninu vestanlands var allmik- ið þörungamagn í júníbyrjun, en fór

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.