Ægir - 15.08.1967, Blaðsíða 24
270
Æ GIR
Hin óvenju miklu áhrif köldu tungunn-
ar fyrir Norðausturlandi í júní 1965 og
1967 miðað við önnur ár sjást greinilega
á 4.—6. mynd. Á myndirnar eru dregin
mörk 0° jafnhitalínunnar í 50 metra dýpi;
4. mynd (Unnsteinn Stefánsson, 1962, bls.
206) sýnir mörkin árin 1952—1960; á 5.
mynd (Svend-Aage Malmberg, 1967 b) eru
mörkin dregin fyrir árin 1961—1965, þar
sem til þeirra næst, annars er lægsta
mælda hitastig markað á myndina; á 6.
mynd eru mörkin sýnd á árunum 1966
(Svend-Aage Malmberg, a) og 1967.
Lokaorö.
Niðurstöður athugana á hitastigi og
seltu í júní 1967 á hafsvæðinu milli ls-
lands og Jan Mayen sýna, að Pólsjávar
gætir óvenju mikiö. Borið saman við at-
huganir fyrri ára allt aftur að árinu 1948
eru þessar niðurstöður aðeins sambærileg-
ar við aðstæður í júní 1965. Sumarið 1967
telst því til þess „kalda“ tvmdbils, sem
veriö hefur í sjónum noröaustanlands
undanfarin ár. Ekki kemur það á óvart, ef
dæma má af köldu og síðbúnu vori hér á
landi og talsverðum hafís fyrir Norður-
og Norðausturlandi í vor sem leið.
Heimildarrit.
Svend-Aage Malmberg — 1967 a. Breytingar á
ástandi sjávar milli íslands og Jan Mayen. —
Ægir, 12. tbl. — Reykjavík.
Svend-Aage Malmberg — 1967 b. Hydrogaphic
Conditions in Icelandic Waters in June 1965 —•
Ann. Biolog. Vol XXII — Kaupmannahöfn.
Svend-Aage Malmberg — a Hydrographic
Conditions in Iceiandic Waters in June 1966 (í
prentun).
Unnsteinn Stefánsson — 1962 — North Ice-
landic Waters — Rit Fiskideildar III, —- Rvík.
L Ö G
um ltrevliug ú löguin nr. 4 211. febr. liKiO.
uni i'iIfiuluiiigsgjalil uf sjávnrafuriluin.
1. gr.
3. gr. laganna orðist svo:
Ríkissjóður annast innheimtu útflutningsgjalds
samkvæmt 2. gr., og skiptast tekjur af því sem
hér segir frá og með 1. janúar 1967:
1. Til greiðslu á vátryggingariðgjöld-
um fiskiskipa samkvæmt reglum, sem
sjávarútvegsmálaráðherra setur .. . 72.82%
2. Til Fiskveiðasjóðs Islands ........ 17.06%
3. Til Fiskimálasjóðs ................ 5.86%
4. Til rannsóknastofnana sjávarútvegs-
ins ................................. 1.16%
5. Til byggingar haf- og fiskirann-
sóknaskips .......................... 1.52%
6. Til Landssambands íslenzkra útvegs-
manna ............................... 0.79%
7. Til samtaka sjómanna samkvæmt
reglum, sem sjávarútvegsmálaráð-
herra setur ......................... 0.79%
2. gr.
Lög þessi öðlast þejrar gildi.
Ákvæöi til bráðabirgða.
Útflutningsgjald af loðnumjöli, loðnulýsi og
grásleppuhrognum samkv. 2. gr. laganna skal
ekki greitt af framleiðslu ársins 1967.
Samþykkt á Alþingi 18. april 1967.