Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1971, Síða 5

Ægir - 01.03.1971, Síða 5
ÆGIR 47 Áætlun Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir árið 1971 unt leitar- og fiskirannsóknaleiðangra Eftirfarandi áætlun um leitar- og rannsóknarleiðangra fyrir árið 1971 hef- Ur verið samþykkt af ráðgjafanefnd og stjórn stofnunarinnar í samráði við for- stjóra og sérfræðinga hennar. Áætlunin gerir ráð fyrir mikilli aukn- lngu starfsemi stofnunarinnar á þessu SVlði á árinu 1971. Gerir rannsóknaskip- Bjarni Sæmundsson og það, að stofn- unin fær möguleika til að halda togskip- lnu Hafþóri, gæfumuninn í þessu efni. Áð sjálfsögðu getur þurft að breyta usetluninni eitthvað. Eins og nú standa sakir er hinsvegar ekki gert ráð fyrir miklum breytingum. Nokkur nýmæli eru hér upp tekin. Má rtl-a- nefna „fiskileit“ við A.-Grænland síð- ari hluta apríl og í byrjun maí. Ætlunin er að fylgjast með fiskgöngum á þessu avæði, svo og ástandi íss. Getur þetta kom- togurunum að gagni, svo og línubátum. , a verður farið á þær sömu slóðir aftur 1 °któber til rannsókna á karfa og þorski. Eernur þessi leiðangur einnig togaraflot- anum að gagni. Þá verða og gerðar veiðitilraunir á uúklu dýpi hér við land. Verða athug- aðir þeir fiskstofnar, er þar finnast með oilliti til aukinnar hagnýtingar þeirra. Einn athyglisverðasti og þýðingarmesti lluti rannsóknanna beinist að þessu sinni að athugun á fiskungviði. Rannsóknir Pessar, sem hafnar voru í smáum stíl í fyira, hafa það markmið m. a. að leiða í Jos hvernig hrygning ýmissa helztu stofna nytjafiska hefur heppnazt. Má Se&ja, að hér sé um mikilvægan þátt um- hverfisrannsókna að ræða, sem ásamt stórauknum almennum sjórannsóknum, 1111,111 hugsanlega geta skýrt hvaða að- stæður þurfi að vera fyrir hendi til þess að hrygning heppnist. Er hér átt við öll stig frá klaki þar til fiskseiðin eru sæmi- lega sjálfbjarga. Geta þessar rannsóknir sagt fyrir með góðum fyrirvara hvernig stofnarnir verða eftir nokkur ár, þegar kemur að nýtingu þeirra. Þá má nefna, að nú verða hafnar fyrir alvöru kerfisbundnar rannsóknir á stein- bít. Stórauknar verða athuganir á spærl- ingi og kolmunna, svo og á loðnu. Fyrr var minnzt á almennar sjórann- sóknir, sem fyrirhugað er að auka veru- lega. Svo verður einnig um rannsóknir á dýra- og plöntusvifi. _ Að lokum má nefna, að varið mun verða á þessu ári allmiklu fé til leitar og rannsókna á krabbadýrum, skelfiski, hrognkelsi o. fl. umhverfis Island. Ritstj. R/s Bjarni Sæmundsson. 6/1—30/1 Rannsóknir og leit að þorskgöngum úti af V-landi og Vestfjörðum. Veiðitil- raunir á miklu dýpi. 13/2—8/3 Almennar hafrannsóknir (fiskirann- sóknir, sjórannsóknir, rannsóknir á dýra- og plöntusvifi) Háfadjúp — Snæ- fellsnes. Sjórannsóknir og straummæl- ingar SA- til NA-lands. 12/3—8/4 Almennar hafrannsóknir Háfadjúp — Snæfellsnes. Leit að þorskgöngum við S- og V-land. 15/4—8/5 Fiskileit Austur-Grænland. 15/5—5/6 Almennar hafrannsóknir V- til NA- lands. Söfnun fisklirfa. 10/6—10/7 Eftirlit Bremerhaven.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.