Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.1971, Qupperneq 12

Ægir - 01.03.1971, Qupperneq 12
54 ÆGIR frystar fiskafurðir og um 11.5% hærra en meðalverð ársins 1969 fyrir saltfisk. Útflutningsaðilar greiða í sjóðinn, ef verðhækkun fer yfir fyrrgreind meðalverð að viðbættu verðbili, sem verið hefur 11/2—5%. Greiða þeir yfirleitt helming verðhækkunar í sjóðinn. Og sama gildir, ef verð lækkar niður fyrir viðmiðunar- verð að viðbættu verðbili, þá greiðir sjóð- urinn þeim allt að helmingi verðlækkunar. I sjóðinn mun koma af framleiðslu árs- ins 1970 um 330—350 millj. króna vegna frystra fiskafurða, um 33 millj. króna vegna saltfiskafurða og um 32 millj. króna vegna loðnuafurða. Þessar greiðslur stað- festa að verðlag á árinu 1970 hafi verið hagstætt. Endurnýjun bátaflotans: 1 batnandi árferði glæðist áhuginn til endurnýjunar bátaflotans. Um s.l. áramót hafði verið samið um smíði innanlands á 36 bátum 6—20 rúml. að stærð 12 bátum 20—85 rúml. að stærð 15 bátum 105 rúml. að stærð 1 báti 125 rúml. að stærð 1 báti 150 rúml. að stærð 1 báti 400 rúml. að stærð Auk þessa hafði verið samið um smíði á 450 rúml. báti í Noregi. Samtals hafði verið samið um smíði á 67 bátum, sem eru 3.642 rúml. að stærð. Keypt voru á s.l. ári 2 notuð skip er- lendis, m/s Dagný SI 70, 385 rúml. og m/s Kristján Guðmundsson IS 77, 170 rúml. Auk þess hafa verið keypt til lands- ins í ársbyrjun 5 erlend skip, sem munu eiga heimahöfn á Skagaströnd, Sauðár- króki, Neskaupstað, Eskifirði og Þorláks- höfn. Flest eru þessi skip smíðuð til tog- veiða og er varpan tekin inn um skut- rennu. Alls voru 15 skip af stærðinni 15—184 rúml. strikuð út af skipaskrá á árinu 1970 og voru þau samtals 1.031 rúmlest. Mörgum er áhyggjuefni hvað mikið er nú smíðað af bátum, sem minni eru en 20 rúml. og þykir mörgum það vera skref aftur á bak. Munu þessir bátar ekki verða gerðir út nema takmarkaðan tíma af ár- inu. Kemur það oft illa við útgerð stærri báta, þegar menn hlaupa úr skiprúmi á miðri vertíð til þess að sækja sjó á trillu- bátum og öðrum minni bátum. Erfiðleikar me8 menn á báta: í upphafi þessarar vetrarvertíðar hafa komið í ljós meiri erfiðleikar við að manna bátaflotann en mörg undanfarin ár. Virð- ist fiskverðshækkun og hlutaskipti ekki ráða úrslitum, heldur óeðlilega mikil eftir- spurn eftir fólki í landi. Ekki virðist vera stjórn á því að haga framkvæmdum í samræmi við framboð á vinnuafli. Virðast opinberir aðilar, ríki og bæjarfélög, sízt gæta hófs í þessu efni, og ráðgera þeir nú margar stórframkvæmdir, án nokkurs til- lits til framboðs á vinnuafli. Lánastofnan- ir, sem byggðar eru upp með fjármagni frá atvinnurekstrinum eins og t. d. Hús- næðismálastjórn, hagar ekki útlánum í samræmi við þarfir sjávarútvegsins til vinnuafls. Er nú unnið að húsbyggingum á vetrarvertíðartímabilinu andstætt því sem verið hefur, en á þeim tíma árs hafa byggingariðnaðarmenn til þessa leitað eftir störfum við sjávarsíðuna. Breytt hefur verið reglum um greiðslu atvinnuleysisbóta á þann veg, að nú geta hundruð manna verið á atvinnuleysisstyrk á Norður- og Norðausturlandi, án þess að leita eftir atvinnu þar sem atvinnu er að hafa, eins og þeir áður gerðu og þeim sjálf- um og öðrum þótti sjálfsagt að gera. Lokaorð: Eins og fram hefur komið hér að fram- an hafa tvö s.l. ár verið sjávarútveginum tiltölulega hagstæð. Er ánægjulegt að sjá, hvað útvegsmenn hafa getað notað þá möguleika, sem gefizt hafa og látið skip sín stunda þær veiðar hverju sinni, sem hagkvæmastar hafa reynzt. Ekki á það að fara fram hjá neinum, hvílíkur aflgjafi sjávarútvegurinn hefur verið öllu atvinnu-

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.