Ægir - 15.03.1971, Qupperneq 14
68
ÆGIR
NÝ FLUTNINGATÆKNI
<bYRLUPALLUR FYRIR
VÖRU-HLEÐSLU OG AFHLEÐSLU STjÓRNSKRÚFA
VÖRULYFTA-i
AÐALVEL
DIESELRAFSTÖÐ
VORUGEYMSLA
STJORNKLEFI j MANNAÍBÚÐIR
| RAFRE/KNIR
Ægir hefur áður
birt nokkrar greinar
um nýjustu tækni og
hugmyndir manna
um vöruflutninga
framtíðarinnar.
Hér birtist mynd
og greinarkorn um
eina nýja hugmynd
til vöruflutninga á
gámum (containers)
með loftskipum. Hin
nýju loftskip verða
mun stærri en hinir
gömlu og frægu
„Zeppelinar“. Loft-
skipið fræga „Hind-
enburg“ var t. d. 245
m langt og 41 m í
þvermál, en til sam-
anburðar er gert ráð
fyrir að hin nýju vöruflutningaloftskip
verði 372 m löng og 76 m í þvermál. Véla-
orkan í hinum nýja skipum, verður um 600
hö. og á að vera hægt að knýja skipið
áfram gegnum loftin með 110 sjómílna
hraða á klukkustund.
Auk aðalskrúfu aftast á loftskipinu, sem
knýr það áfram, verða 3 skrúfur á hvorri
hlið skipsins og verða þær notaðar til að
halda skipinu kyrru í loftinu meðan verið
er að lesta það og losa.
Eins og meðfylgjandi teikning af skip-
inu ber með sér, er gert ráð fyrir að nota
þyrlu við lestun, til að lyfta gámum (con-
tainers) upp á sérstaklega byggðan pall
efst á loftskipinu. Gámarnir eru síðan
fluttir með lyftu niður i „lest“ skipsins.
Gert er ráð fyrir að hægt sé að koma þar
fyrir 40 gámum með samanlögðum þunga
um 500 tonn.
Til þess að skipið „fljóti“ í loftinu er
belgur þess fylltur með um 30 millj. kubik-
fetum af heliumgasi.
Þeir aðilar, sem hug hafa á „útgerð"
slíkra skipa gera sér góðar vonir um hagn-
að af slíkum vöruflutningum, m. a. vegna
þess, að slík skip geta flutt vöruna hvert
á land sem er. Gera má ráð fyrir að ekki
líði langur tími þar til slík skip „sigla“
um loftin blá.
G. I.
ÆGIR
rit Fiskifélags íslands. Kemur út hálfsmánaðarlega. Árgangurinn er
kringum 400 síður og kostar 300 kr. Gjalddagi er 1. júlí. Afgreiðslu-
sími er 10501. Pósthólf 20. Ritstjóri Már Elísson. Prentað í Isafold.