Ægir - 01.08.1974, Síða 5
mm
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
67.ÁRG. 11.TBL. 1. ÁGÚST 1974
EFNISYFIRLIT:
Líkanprófanir veiðar-
færa 201
•
Auðunn Ágústsson
°g Emil Ragnarsson:
Tilraunageymar fyrir
veiðarfæri 202
tJtgerð og aflabrögð 209
Piskaflinn í desember
1973 og 1972 214
•
L'tfluttar sjávarafurðir
í mars 1974 og 1973 216
Lög og reglugerðir:
Leglugerð um möskva-
stærðir botnvörpu o. fl. 218
Ný fiskiskip:
Otur GK 5
Sigluvík SI 2 220
ÚTGEFANDI:
FISKIFÉLAG ÍSLANDS
HÖFN. INGÓLFSSTRÆTI
S(MI 10500
RITSTJÓRN:
MÁR ELlSSON (ábm.)
JÓNAS BLÖNDAL
AUGLÝSINGAR:
GUÐMUNDUR
INGIMARSSON
UMBROT:
GlSLI ÓLAFSSON
PRENTUN:
ÍSAFOLD
ÁSKRIFTARVERÐ
750 KR
ÁRGANGURINN
KEMUR ÚT
HÁLFSMÁNAÐARLEGA
Líkanpr óf anir
veiðarfæra
Á öðrum stað hér í blaðinu
birtist grein um tilraunir, sem
nú fara fram í Frakklandi með
prófanir veiðarfæra, einkum
togveiðarfæra, í þar til gerð-
um geymum. Auk Frakklands
er kunnugt um, að svipaðir til-
raunageymar eru í notkun í
Bretlandi og Japan. Enda þótt
prófanir líkana skipa í þar til
gerðum geymum eigi sér all-
langa sögu, er einungis
skammt síðan slíkar athug-
anir hófust á hegðun ýmissa
gerða togveiðarfæra í sérsmíð-
uðum tönkum. Hér á landi
hafa nokkrir framtakssamir
einstaklingar eins og t. d.
Agnar Breiðfjörð og Bjami
Ingimarsson þreifað sig áfram
með nýjar gerðir togveiðar-
færa í Sundhöll Reykjavíkur.
Þegar stjóm Fiskifélagsins
varð kunnugt um þessar til-
raunir Frakka, var strax haf-
izt handa um athugun á því,
hvort vænlegt mundi vera, að
slíkri aðstöðu yrði komið upp
hér á landi. Hafði Páll Guð-
mundsson skipstjóri átt þess
kost m. a. að kynna sér þessi
mál.
Sá er þetta ritar, ræddi
ásamt Þorsteini Gíslasyni
skipstjóra og verkfræðingum
Fiskifélagsins, við Jónas El-
íasson, verkfræðing, sem er
helzti sérfræðingur okkar í
straumfræðum og framkvæm-
ir líkanprófanir á höfnum,
brúm o. fl„ um möguleika á
samvinnu. Er það nú í athug-
un og jafnframt að hve miklu
leyti unnt er að framkvæma
tankprófanir skipslíkana.
Fyrir fiskveiðiþjóð sem ís-
lendinga er tvímælalaust
gagnlegt að geta gert þessar
tilraunir hér á landi. Má í því
sambandi benda á ummæli
Hans Sigurjónssonar skip-
stjóra, sem birt eru annars
staðar í blaðinu. Auk líkana
skipa og togveiðarfæra, má
benda á athuganir á hegðun
neta, herpinóta, bólfæra o. fl.
í straumþunga.