Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1974, Blaðsíða 12

Ægir - 01.08.1974, Blaðsíða 12
Gagnlegt tæki 1 apríl s.l. fékk ég tækifæri til að kynnast tilraunageymi fyrir veiðarfæri í Boulogne. Þar voru sýndar margar gerð- ir af botn- og flotvörpum og hvernig þær unnu á mismun- andi toghraða. Einnig voru sýndar allar algengar gerðir af toghlerum. Hægt var að sjá hvernig viðkomandi varpa og hlerar unnu hverju sinni, svo og hvaða áhrif ýmsar breyt- ingar höfðu á veiðarfærið, t. d. stytting eða lenging efri eða neðri grandara þegar reyndir voru tvöfaldir grandarar. Einnig var hægt að sjá hliðstætt ef breytt var höfuð- línuleggjum eða fótreipum. Algengasta stærð líkan- anna var 1 á móti 25. Ég tel mjög nauðsynlegt að koma upp hliðstæðum tilraunageymi hér á landi. Þar gætu skipstjórnar- menn reynt hugmyndir sínar á tiltölulega ódýran hátt, í stað þess að nú eiga þeir þess einan kost að fórna til þess dýrmætum veiðitíma og alltaf er hætta á að slíkar tilraunir verði ,kák“ eitt, þar sem alltaf er verið í kapphlaupi við tímann.Einnig tel ég að slík- ur tilraunageymir væri mjög nauðsynlegt kennslu- tæki fyrir stýrimannaskóla. Þar gætu nemendur séð hvemig veiðarfærið vinnur, en það hefur til þessa tekið menn mörg ár og oft dýrkeypta reynslu að kynn- ast því. Með tilkomu stóraukins togaraflota tel ég tilraunageymi fyrir veiðarfæri bráðnauðsynlegan, bæði vegna þróunar veiðarfæra og þjálfunar manna á þann flota. Hans Signrjónsson Tilrauna- Straum hraði Breidd geym. Hraði Afk. geymir m/sek k m k m/sek % 1 2 3 4 5 6 Boulogne 0,62 11 1,97 18 0,48 77 Kagoshima 0,80 7 2,00 18 0,48 60 Lorient 1,20 3 2,60 14 0,55 46 Hull 1,50 2 5,00 7 0,78 52 Tafla 1. Samanburður á gegnumstreymisgeymum. Aöalstærðir fyrir tilraunageyma koma fram í töflunni. I töflunni er gengið út frá grantonvörpu með 18 m fjarlægð milli rossklafa, og tog- hraða hn. Reiknað er með að fjarlægð milli rossklafa á vörpu- likani sé 50% af breidd tilraunageymis. 208 — Æ GI R in verður mun minni en ef um dráttargeymi er að ræða Dráttargeymar hafa þó þá kosti fram yfir gegnum- streymisgeyma, að aflþörfin er minni og, miðað við nokkuð stóra tilraunageyma, eru þeir einfaldari og ódýrari í upp- setningu. Hér er átt við til- raunageymana sjálfa, fyrir utan öll mælitæki. Dráttar- geymar hafa svo þann mögu- leika umfram gegnumstreym- isgeymi að framkvæma má til- raunir með skipslíkön. Til að lesandinn fái hug- mynd um þá mismunandi möguleika, sem þeir tilrauna- geymar, sem hér hefur verið lýst, hafa, hefur verið gerður samanburður á þeim í töflu 1- Tafla 1. byggist á granton- vörpu, sem dregin er á 4 hn. hraða, og sem hefur ca. 18 m haf milli rossklafa. 1 útreikn- ingum er gengið út frá að fjarlægð milli rossklafa (fyrir líkan) sé um 50% af breidd tilraunageymis. 1 dálkum 1 og 3 í töflunni eru stærðir fyrir tilraunageymana, þ. e. mesti straumhraði og breidd. I dálk- um 2 og 4 koma fram líkan- hlutföll, annars vegar út frá straumhraða og hins vegar út frá breidd. Eins og sést á töl- unum er það breidd geymis sem takmarkar líkanhlutfall- ið, en straumhraðinn leyfir minna hlutfall. Eins og sést á tölunum í dálk 4 getur stærsti tilraunageymirinn ver- ið með vörpulíkan af ofan- greindri vörpu, sem er 2,5 sinnum stærra að lengdarmál- um en minnstu tilraunageym- arnir. 1 dálkum 5 og 6 kemur fram straumhraðinn í geymú miðað við líkanhlutfall (dálk- ur 4) og vatnsafköst sem hundraðshluti af vatnsafköst- um viðkomandi geymis.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.