Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1974, Blaðsíða 23

Ægir - 01.08.1974, Blaðsíða 23
net með smærri möskvum en þar greinir. Skipum, sem stunda veiðar með smáriðnum botnvörpum eða flotvörpum skv. ákvæðum L mgr. þessarar greinar eða með humar- eða rækjuvörpum skv. ákvæðum l.gr., er það aðeins heimilt að því tilskyldu að, a) að slík veiðarfæri noti skipin aðeins til þess að veiða þær tegundir sem veiðarfærin eru gerð fyrir og b) að öllum fiski, sem í þau fæst og ekki nær lágmarksstærð þeirri, Sem lýst er í 6. gr. reglugerðar þessarar, verði þegar fleygt útbyrðis. 6. gr. Bannað er að hirða nokkurn f^sk, sem er smærri en greint er hér á eftir. Lágmarksstærð- m er mæld frá trjónuoddi að sPorðsenda. Þorskur (Gadus morhua morhua) 43 cm Ýsa (Melano- grammus aeglefin us) 40 — Ufsi (Pollachius virens) . 45 — Lýsingur (Merl- uccius merlucci- us) 30 — Skarkoli (Pleur- oneetes platt- essa) 34 — Langlúra (Gypt- ocephalus cyno- glossus) 30 — Þykkvalúra (Microstomus kitt) 30 — Tunga (Solea solea) 24 — Sandhverfa (Psetta maxima 30 — Slétthverfa Psetta maxima) 30 — Stórkjafta (Lep- idorhombus whiff) 30 — Lýsa (Merlangi- us merlangus merlangus) .... 40 — Sandkoli (Lim- anda limanda) 20 — Steinbítur (Anarhichas lup- us) 40 — Karfi (Seliastes marinus) 500 gr. Einnig er bannað að kaupa eða selja fisk, sem telst til þessara tegunda, ef hann er smærri en segir í þessari grein. Þrátt fyrir ákvæði þess- arar greinar má þó 5% af karfaafla hverrar veiðiferðar vera undir 500 gr. að þyngd hver fiskur. Þá skal óheimilt á tímabilinu 1. nóvember til 15. mars að landa steinbít, sem nemur meir en 5% af afla skips i hverri veiðiferð. 7 gr. Eigi ná ákvæði reglugerðar þessarar til fiskveiða í þágu vísindalegra rannsókna né til fisks, sem í slíkum veiðiferð- um er veiddur. 8. gr. Brot gegn ákvæðum reglu- gerðar þessarar varða refs- ingu samkvæmt 12. gr. laga nr. 102 27. desember 1973, um veiðar með botnvörpu, flot- vörpu og dragnót í fiskveiði- landhelginni. Um tilraun og hlutdeild fer samkvæmt al- mennum ákvæðum III. kafla almennra hegningarlaga nr. 19 12. febrúar 1940. 9. gr. Reglugerð þessi er sett sam- kvæmt 9. gr. laga nr. 102 27. desember 1973, um veiðar með botnvörpu, flotvörpu og drag- nót í fiskveiðilandhelginni til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni þeim, sem hlut eiga að máli. Bráðabirgðaákvæði Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. gr. reglugerðar þessarar er heimilt í tvö ár frá gildistöku reglugerðarinnar að nota þau botnvörpunet, sem til eru eða ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að afla fyrir gildis- töku hennar, enda séu þau gerð samkvæmt þeim reglum, sem giltu fyrir gildistöku reglugerðarinnar. ÞEIR FISKA SEM RÖA MEÐ VEIÐARFÆRIN FRÁ SKAGFJÖRÐ Æ GIR — 219

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.