Ægir - 01.08.1974, Síða 10
Mynd 5. Tilraun með vörpulíkan (liop-trawl) i
dráttargeyminum í Japan.
Mögulegt er að keyra með
hraða 0,5 — 5 hnútar. í gegn-
um glugga á annarri langhlið
geymisins er fylgst með til-
raununum, en með því að setja
neðansjávarmyndavél fyrir
framan vörpulíkanið fæst
mynd af hegðan líkansins frá
öðrum sjónarhóli. Mynd 5 sýn-
ir tilraun með vörpu í ofan-
greindum tilraunageymi.
í Kagoshima Háskólanum í
Japan (Faculty of Fisheries,
Kagoshima University) er
gegnumstreymisgeymir, sem
er talsvert eldri en Boulogne-
geymirinn. Uppbygging geym-
isins er allfrábrugðin Boul-
ognegeyminum hvað viðkem-
ur vatnshringrásarfyrirkomu-
lagi. Vatnið streymir eftir
tveimur ellipsulaga stokkum
(1 m á breidd), sem liggja hlið
við hlið og tengjast saman í
2 m breiðan stokk, þar sem
langhliðarnar mætast. Sam-
kvæmt ofangreindu er vatns-
straumurinn réttsælis í öðrum
stokknum, en rangsælis í hin-
um. Miðhlutinn, sem er til-
raunEihluti geymisins, er 2,0 m
breiður og 1,0 m á dýpt. Mögu-
legt er að ná 0,8 m/sek.
straumhraða, sem svarar til
1,6 m3/sek. gegnumstreymis-
magns.
Hjá Frökkum verður nýr til-
raunageymir fyrir veiðarfæri
tekinn í notkun á þessu ári,
og verður hann staðsettur í
Lorient. Geymir þessi er gegn-
umstreymisgeymir eins og til-
raunageymir Frakka í Boul-
ogne, en er heldur stærri
(breiðari) og í honum er unnt
að ná meiri straumhraða.
Mynd 6 sýnir teikningu af til-
raunageyminum í Lorient.
Eins og sést á myndinni er
uppbygging þessa tilrauna-
geymis svipuð og Boulogne-
geymisins, nema hvað hring-
rás vatnsins er í láréttu plani
og aðeins ein skrúfa sér
um vatnshringrásina í stað
tveggja. Þversnið tilrauna-
hluta geymisins er 2,6 x l,3m
(breidd x dýpt) og gegnum-
streymismagn um 4 m3/sek,
sem svarar til 1,2 m/sek
straumhraða.
Bretar eru að fara af stað
með tilraunageymi og er það
stofnunin „White Fish Auth-
ority (IDU)“ í Hull, sem sér
um það verkefni, bæði hönn-
un geymisins svo og veiðar-
færatilraunir. Er greinarhöf-
undar heimsóttu „White Fish“
í Hull gafst tækifæri til ao
skoða líkan, sem sett hefur
verið upp af þessum tilrauna-
geymi. Geymir þessi verð-
ur gegnumstreymisgeymir,
byggður úr steypu, og verður
mun stærri og fullkomnari en
tilraunageymirinn í Boulogne.
Þversnið tilraunahluta geym-
isins er 5,0 x 2,5 m (breidd x
dýpt) og verður unnt að ná
1,5 m/sek straumhraða, sem
svarar til 19 m3/sek eða um
70000 t af vatni, sem dæla þarf
gegnum geyminn á klst.. Til að
ná þessum afköstum eru 4
skrúfur, 1250 mm í þvermál,
sem eru vökvaþrýstiknúnar,
en samtals aflþörf, fyrir mesta
straumhraða, er um 480 hö.
í botni tilraunahluta geymis-
ins er 11 m langt færiband,
knúið 30 ha. rafmótor.
Stærð geymisins og afköst
dælukerfisins eru það mikil,
að þau leyfa líkanhlutfall 1:8,
og er þá miðað við stóra
vörpu. Áætlað verð tilrauna-
geymis „White Fish“ er ca. 50
millj. ísl. kr.
Tilraunatæki, kennslutæki.
Það orkar ekki tvímælis að
veiðarfæratilraunageymar eru
gagnlegir og svo tekinn sé
tilraunageymir Frakka í Boul-
ogne þá hefur hann sannað
ágæti sitt og varla færu
Frakkar að byggja annan
hliðstæðan tilraunageymi, ef
hér væri ekki gagnlegt „tæki“
á ferðinni. Nú hafa Bretar
tekið við sér og eru í þann veg-
inn að koma sér upp slíkum
tilraunageymi. Báðar þessar
þjóðir byggja sínar veiðar
mest á togveiðum sem kunn-
ugt er.
Tilraunageymar á þessu sviði
206 — Æ GIR